29.7.2009 | 09:41
Auðvitað styðjum við stjórnina

![]() |
Ríkisstjórnin með 43% stuðning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.7.2009 | 01:27
"Listaverkaþjófar" skila ESB fána
Seint í kvöld var dyrabjöllunni hringt en þegar ég ætlaði að opna var enginn sjáanlegur. Út úr póstkassanum stóð hinsvegar böggull vafinn inn í álpappír og bréf stílað á mig:
Ótrúlega skemmtilegt bréf og ESB fáni var inn í álpappírnum. Mér er því ljúft og skylt að svara spurningunum sem beint er til mín og einnig birti ég hér fréttatilkynningu sem birtist á bloggsíðu Myndlistarfélagsins fyrir nokkrum dögum og reyndar hafði álíka tilkynning birst á síðunni um miðjan maí þegar sýningin opnaði formlega:
"Sýning Hlyns Hallssonar í Gallerí Víð8ttu601 sett upp aftur og framlengd
Gallerí Víð8tta601
Hlynur Hallsson
Landnám - Ansiedlung - Settlement
16.05. - 23.08. 2009
Verkið sem Hlynur Hallsson setti upp í Gallerí Víð8ttu hefur verið stolið í tvígang en vegna þrjósku listamannsins og sýningarstjóranna hefur það verið sett upp í þriðja skipti og sýningin verið framlengd um mánuð.
Litla Skerið í Tjörninni sem myndaðist þegar Drottningarbraut var lögð árið nítjánhundruð sjötíu og eitthvað er ónumið land. Tunglið var það einnig einu sinni og Norðurpóllinn og Suðurpóllinn líka. Hver verður fyrstur til að stíga á þetta Sker litið persónulegt skref en um leið stórt skref fyrir mannkynið? Ekki Bandaríki Norður Ameríku heldur auðvitað Evrópusambandið. Hið nýja heimsveldi er mætt á staðinn. Þar hefur verið settur upp fáni ESB, sannkallaður landnemafáni.
Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík, Hannover, Hamborg og í Düsseldorf. Hann hefur verið iðinn við að setja upp sýningar og síðastliðið haust setti hann upp nokkurskonar yfirlitssýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu og í A-sal Hafnarhúss Listasafns Reykjavíkur ásamt verslunum, veitingastöðum og þjónustufyrirtækjum í Miðborginni setti hann upp verkið ÚT/INN.
Hlynur hlaut verðlaun Kunstverein Hannover 1997, verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra-Saxlandi 2001 og verðlaun Sparda Bank árið 2006. Hann hefur hlotið starfslaun myndlistarmanna og var bæjarlistarmaður Akureyrar árið 2005. Hlynur vinnur með aðstæður, texta, innsetningar, ljósmyndir, gjörninga og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Hversdagslegir atburðir eins og sundferðir, snjóhúsbygging eða verslunarleiðangur geta verið efniviður í verkum hans en einnig landmæri, samskipti fólks og viðhorf okkar. Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimsíðunni www.hallsson.de
Anna Bryndís Sigurðardóttir og Þorsteinn Gíslason hafa starfrækt Gallerí Víð8ttu601 frá árinu 2007. Sýningarnar í Hólmanum í tjörninni í Innbænum á Akureyri munu halda áfram fram á næsta ár og þá taka aðrir sýningarstaðir við.
Nánari upplýsingar um verkið veitir Hlynur í síma 6594744 og í tölvupósti: hlynur(hjá)gmx.net"
---
Svarið við fyrstu spurningunni er:
Tilgangur verksins er að vekja upp umræðu, setja hlutina í annað samhengi, vekja upp spurningar og viðbrögð.
Svarið við spurningu tvö:
Ég er hvorki að gera lítið úr Evrópusambandinu né að sýna því stuðning með þessu verki en auðvitað getur hver og einn túlkað þennan "landnema" fána á Skerinu í Tjörninni á sinn hátt.
Og svarið við þriðju og síðustu spurningunni:
Ég ætla ekki að setja upp fleiri pólitísk verk eða verk yfirleitt á Skerinu. Sýningunni lýkur 22. ágúst 2009 en á Akureyrarvöku, viku seinna opnar Haraldur Jónsson nýja sýningu sem er jafnframt síðasta sýningin á vegum Gallerís Víð8ttu601 á þessum stað en ég veit að sýningarstjórarnir eru að leita að nýjum stað fyrir áframhaldandi sýningar. Næstu pólitísku verk sem ég set upp eru spreyverk og textaverk á samsýningu um hrunið sem heitir "Lífróður" og verður opnuð í Hafnarborg í Hafnarfirð þann 29. ágúst 2009.
Svo að lokum vil ég þakka drengjunum kærlega fyrir bréfið og fánann og hvet þá til dáða í framtíðinni en hvet þá einnig til að koma fram undir nafni þó að ég hafi auðvitað fullan skilning á því ef þeir vilja ekki gera það.
Skilti sem einnig var við tjörnina með titli verksins og hluta textans sem einnig er hér að ofan úr fréttatilkynningunni var stolið fyrir nokkrum vikum. Vonandi hringir einhver dyrabjöllunni hjá mér og skilar því eða enn betra væri að koma því bara aftur fyrir þar sem það var, við Tjörnina.
Þá eru bara tveir ESB fánar eftir að koma í leitirnar.
Tengill á frétt í Sjónvarpinu.
![]() |
Getum lifað án Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
27.7.2009 | 10:03
Er ekki kominn tími á að frysta eignir?
Það líður varla sú vika að ekki komi meiri drulla upp úr lánabókum bankanna og fréttir af því hvernig eigendur og stjórnendur þeirra hafa hagað sér á kostnað venjulegs fólks í þessu landi því við þurfum jú að borga brúsann að lokum. Ég er ekkert sérstaklega harðorður en get tekið undir með Agli Helgasyni þar sem hann segir meðal annars:
"Ríkisútvarpið sagði frá lánum Landsbankans til Björgólfsfeðga, eigenda bankans.
Lára Hanna skoðar fréttina í þessari bloggfærslu.
Er kannski komið að því að lánabækur Landsbankans og Glitnis fari að opnast? Að óþverrinn velli þar út líka?
Hingað til hefur lekið mest úr Kaupþingi; lánastarfsemin þar virðist hafa verið með algjörum ólíkindum.
Þetta virðist skiptast alveg í tvennt:
Annars vegar er venjulegt fólk sem fær lán og þarf að borga þau aftur með vöxtum og verðbótum og allt er gjaldfellt ef greiðslur berast ekki með skilum.
Hins vegar eigendur bankanna, stjórnendur og vildarvinir sem fá lán eins og hentar og þurfa varla að borga neitt aftur.
Hvað á að kalla þessa tegund af lánastarfsemi?
Ræningjalán?
Hvers konar lið var þetta sem fékk íslensku bankana nánast gefins?
Voru þetta ótíndir þjófar?"
Og Jónas Kristjánsson er ekki að skafa utan af því frekar en fyrri daginn en hann segir í pistli:
"Hafa má til marks um fákænsku og eymd Geirs H. Haarde, að hann sóttist eftir að hitta Björgólf Thor Björgólfsson. Vildi að eigin sögn alltaf tala við hann, þegar Björgólfur væri á landinu. Á þessum tíma sagði ég, að menn ættu ekki að taka mark á Björgólfi. Hann væri aumingi, sem ekki borgaði skatta til samfélagsins. Árum saman var hann skattlaus og fyrir rest borgaði hann vinnukonuskatta. Fólk á ekki að taka mark á manni, sem ekki sinnir skyldum sínum við samfélagið. Fyrir mörgum árum sagði ég ítrekað, að Björgólfur Thor væri bara ómerkur græðgiskarl. Ég held, að Geir hafi ekki fattað það enn."
Þessar skilanefndir bankanna sem hin vanhæfa ríkisstjórn SjálfstæðisFLokks og Samfylkingar setti á fót eru einnig grunsamlegar. Er ekki kominn tími til að fá nýtt fólk þar til starfa?
Og eftir hverju er verið að bíða? Það eru rúmir 9 mánuðir frá hruninu og enginn hefur verið handtekinn og eignir aðalgauranna ekki frystar. Þeir hafa haft nægan tíma til að koma öllu undan eins og er að koma í ljós. Það er sem betur fer ljós í þessu myrkri og það er að ríkisstjórninni tókst að fá Evu Joly til starfa og er að fara eftir leiðbeiningum hennar. Það er gott.
![]() |
Skoða lánveitingar Landsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
24.7.2009 | 09:35
Allir með strætó!
Það eru góðar fréttir að farþegum Strætó á Akureyri heldur áfram að fjölga. 150% aukning er almennileg. Ég þekki það sjálfur að nú er mun auðveldara fyrir krakkana að tæka strætó á Skautaæfingar og í Tónlistarskólann, þarf ekkert klink og vesen. Sjálfur tek ég strætó gjarnan úr miðbænum upp á Brekku með barnavagninn þunga!)
Nú þarf bara að fjölga leiðum (bæta við leiðum sex og átta) og hafa einhverjar ferðir tíðari. Þá munu enn fleiri sleppa því að fara á bílnum í vinnu og skóla og hvert sem er. Það vantar líka strætó útá flugvöll. Skandall að ferðamenn þurfi að labba af flugvellinum og það er ekki einu sinni gangbraut, fyrir löngu kominn tími á gang og hjólabraut meðfram ströndinni við Drottningabraut.
Myndin er af vef Akureyrarbæjar og ekki örvænta, það er ekki kominn svona mikil snjór hér þrátt fyrir hretið, myndin er tekin um vetur. Áfram Strætó!
![]() |
150% fjölgun farþega strætó á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2009 | 11:04
Já takk, rólegri akstur í Gilinu yrði til mikilla bóta
Mér líst mjög vel á hugmyndir um að gera Listagilið á Akureyri að einstefnuakstursgötu. Það myndi gera götuna og mannlífið í Gilinu enn blómlegra og ánægjulegra. Veitingastaðirnir hefðu meira pláss fyrir útiborð og ekki yrði eins hættulegt fyrir alla þá sem eru fótgangandi að fara milli staða yfir götuna. Það mætti skoða í leiðinni að hafa Oddeyrargötu einnig einstefnugötu. Undantekningu ætti að gera fyrir Strætó.
Það eru ekki bara íbúar sem hafa kvartað yfir hávaða í bílum og mótorhjólum sem spyrna upp Gilið með bensínið í botni heldur einnig tónleikagestir og auðvitað gestir veitingahúsa. Gilið er stór vinnustaður listamanna, þar eru sjö sýningarstaðir, Listasafn, Myndlistarskóli, fimm veitingastaðir og kaffihús, tónleikasalir, vinnustofur og íbúðir svo eitthvað sé upptalið.
Það má vel draga úr bílaumferð og hægja á henni. Nýju hraðahindranirnar hafa þegar sannað gildi sitt og nú er að taka næstu skref.
![]() |
Einstefna í Gilinu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
20.6.2009 | 21:12
Gunnar Birgisson yfir lög og reglur hafinn
Gunnar Birgisson bráðum fyrrverandi bæjarstjóri og verktaki í Kópavogi er greinilega langt yfir lög og reglur hafinn að eigin mati. Hann telur því kæru Fjármálaeftirlitsins stórundarlega. Best að bíða eftir úrskurði dómsvalda og þá munum við vonandi sjá hvað er stórundarlegt í þessu máli bæjarstjórans sem er jú lagður í einelti af vinstrimönnum, að eigin sögn.
![]() |
Sjóðsbjörgun kærunnar virði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.6.2009 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.6.2009 | 10:03
Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Bubbi Morthens söng fyrir nokkrum árum um hvort það væri nauðsynlegt að drepa þessar stóru skepnur og svarið er auðvitað nei, það er ekki nauðsynlegt og reyndar frekar heimskulegt. Öll rök segja okkur að á þessum tímum er það afar óhagstætt fyrir þjóðfélagið að skapa okkur enn meiri óvild en orðið er.
- Markaðir fyrir fisk eru í hættu.
- Þetta bitnar á ferðamannaiðnaðinum.
- Hvalveiðar eru ekki skynsamlegar fyrir hvalaskoðun sem hefur blómstrað á síðustu árum.
- Það er enginn markaður fyrir þetta kjöt, ekki einu sinni í Japan.
Skoðum hval en skjótum þá ekki. Sá eini sem græðir á hvaladrápi er Kristján nokkur Loftsson og félagar hans.
Ég hef auðvitað fullan skilning á því að fólk fái vinnu við að skera hval og reyndar eru þarna góðir vinir mínir þarna í forsvari eins og Þórarinn Blöndal og fleiri ljómandi myndlistarmenn. Reyndar var skemmtilegt að það voru einmitt tveir myndlistarmenn og hvalskerar, þeir Þórarinn Blöndal og Gunnar Andrésson sem voru fengnir í viðtal í sjónvarpsfréttum á ruv í gær þar sem þeir biðu eftir fyrstu hvölunum.
![]() |
Risavaxinn morgunverður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
18.6.2009 | 09:44
Frjálsi fjárfestingarbankinn
Frelsið er dásamlegt, ég má gera það sem ég vil. Frjálsi fjárfestingabankinn er öflugur í innheimtunni, sigar lögfræðingum og innheimtufyrirtækjum, sem fitna í kreppunni, á fólk sem á ekki fyrir myntkörfulánunum sínum. Frjálshyggjan er dásamleg, bara ekki nóg af henni segir Hannes Hólmsteinn og sporgöngdrengirnar hans í Heimdalli og SUS.
Örvænting mannsins sem rústaði fyrrverandi húsinu sínu og gróf bílinn á táknrænan hátt á þjóðhátíðardaginn 17. júní er mikil. Hann fer sennilega á sakaskrá fyrir og fær dóm en bankanum er alveg sama um okkur. Sérstaklega "Frjálsa" fjárfestingarbankanum.
Ég mæli með Naomi Klein sem skrifar um aðferðir frjálshyggjunnar við að rústa þjóðfélög.
Nei er besta blaðið!
![]() |
Bankinn fékk ekki lyklana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.6.2009 | 08:39
SjálfstæðisFLokkurinn er enn gerspilltur flokkur
Það er mikið talað um endurnýjun í stjórnmálum og að allt verði að komast uppá borðið en nýjustu fréttir í Kópavogi benda til þess að öll sú umræða hafi þotið eins og vindur um eyru flokkseigendaklíkur FLokksins. Karlarnir þar á bæ geta ekki komið sér saman um eftirmann hins gerspillta bæjarstjóra og hver höndin upp á mót annarri og þá er lausnin bara að halda aðal manninum áfram.
Það er hinsvegar spurning hvað viðhengið (endurnýjaða) Framsókn ætlar að sitja lengur undir þessu rugli. Þau eru svosem vön, hafa verið með FLokknum í 19 á í meirihluta. En er ekki komið nóg?
![]() |
Vilja ekki að Gunnar hætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.6.2009 | 09:35
Spennandi kosningar í Íran
Í dag er kosið um nýjan forseta í Íran. Það væri óskandi að umbótasinninn og myndlistarmaðurinn Mirhossein Mousavi yrði kosinn forseti. Það gæti leitt til þýðu milli landsins og annarra og ekki síður myndi það bæta mannréttindi í Íran. Núverandi forseti Mahmoud Ahmadinejad hefur í raun skaðað Íran á sama hátt og George W. Bush skaðaði Bandaríkin. Báðir hafa þeir rekið fjandsamlega utanríkisstefnu og með því aukið á óvild í garð sinna landa.
Það er ólíklegt að einhver einn frambjóðendanna fjögurra hljóti hreinan meirihluta svo reikna má með því að önnur umferð fari fram og það verður þann 19. júní. Íranska þjóðin á það skilið að fá umbótasinna í stað harðlínumanns sem forseta og vonandi sigrar Mirhossein Mousavi.
![]() |
Kosningarnar hefjast í Íran |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2009 | 10:15
Piparúða beitt í óhófi
Sem betur fer fór búsáhaldabyltingin að mestu leiti friðsamlega fram. Það tókst að steypa vanhæfri ríkisstjórn með mótmælum fólks sem átti ekkert sökótt við lögregluna. Reyndar brást fólk hárrétt við þegar einhverjir byrjuðu að henda steinum í lögreglumenn með því að mynda skjaldborg um þá og stilla sér upp milli grjótkastaranna og löggunnar. Það var upphafið á appelsínuguluborðunum.
Sú stefna lögreglunnar að beita ekki ofbeldi og taka mjúklega á mótmælendum bjargaði því að ekki urðu slys á fólki, bæði lögreglumönnum og fólki sem var að mótmæla. Björn Bjarnason hvatti til aukinnar hörku "til að verja valdstjórnina" en sem betur fer kom ekkert slíkt til framkvæmda. Það má þó halda því fram að piparúða hafi verið beitt í óhófi og á rangan hátt þegar meðal annars var sprautað beint í augu ljósmyndara og fólks sem var ekkert að gera annað en að mótmæla friðsamlega. Það að svara ofbeldi með ofbeldi leiðir aðeins af sér meira ofbeldi. Það hefði farið mun verr ef lögreglan hefði beitt meiri hörku í vetur, við getum þakkað fyrir að svo fór ekki.
![]() |
Piparúði á þrotum þegar átökin náðu hámarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.6.2009 | 09:24
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram tillögur um að leggja sig niður
Það væri nú góðverk sem þessi flokkur sem komið hefur Íslandi í klandur gæti gert. Aðeins of seint í rassinn gripið að koma með tillögur um eitthvað annað núna. Er ekki tilvalið að Þorgerður Katrín og Bjarni Ben myndu skammast sín aðeins? Ég veit að þetta er full mikil bjartsýni hjá mér en það má reyna.
Sem betur fer eru aðrir teknir við að bjarga því sem bjargað verður og Sjálfstæðisflokkurinn getur lagt sig niður eða bara verið í stjórnarandstöðu næstu 18 árin.
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2009 | 09:16
Systurflokkur Vinstri grænna vinnur stórsigur á Grænlandi
Inuit Ataqatigliit (IA) vann stórsigur í þingkosningum, sem fóru fram á Grænlandi í gær. Þetta voru aðrar kosningarnar í röð sem IA vinnur afgerandi sigur og fékk nú 43,7% atkvæða og 14 þingmenn af 31 á grænlenska landsþinginu. Þeim tókst þannig að toppa sigur VG frá því í vor glæsilega.
Spilling hefur einkennt grænlensk stjórnmál líkt og hér á landi og það er ánægjulegt að Inuit Ataqatigliit sé treyst til að taka við og endurvinna traust fólks á stjórnmálum. Þann 21. júní taka gildi lög sem færa Grænlendingum aukna sjálfsstjórn og vonandi hefur Kuupik Kleist, formaður IA þá þegar myndað nýja stjórn á Grænlandi. Það eru að renna upp nýir og spennandi tímar á Grænlandi og ánægjulegt að systurflokkur Vinstri grænna leiði uppbygginguna.
Til hamingju með sigurinn Grænlendingar!
![]() |
Inúítaflokkurinn vann stórsigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.5.2009 | 10:40
Til hamingju Kristján Guðmundsson
Það eru gleðitíðindi að Kristján Guðmundsson hljóti Carnegie verðlaunin í ár. Hann er framúrskarandi myndlistarmaður og á þau svo sannarlega skilin. Það var líka ef til vil kominn tími til að íslendingur hlyti aðalverðlaunin. Það er hægt að sjá verk Kristjáns núna á sýningu í Listasafni Íslands. Hann var líka einn listamannanna sem tók þátt í opnunarsýningu Verksmiðjunnar á Hjalteyri síðasta sumar og býr hann að hluta til enn á Hjalteyri. Skemmtilegt að hugmyndalistamaður hljóti þessi verðlaun sem eiginlega eru kennd við málverk en sem betur fer hafa dómnefndirnar verið afar víðsýnar hvað það varðar þegar kemur að því að velja verðlaunahafa. Til hamingju Kristján.
![]() |
Kristján fær Carnegie verðlaunin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2009 | 10:16
Ímynd Íslands hefur beðið hnekki
Þrátt fyrir að misvitrir stjórnmálamenn og útrásarvíkingar hafi svert ímynd Íslands er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að bæta ímyndina. Það er einmitt nauðsynlegt og aldrei brýnna en einmitt nú.
Ég veit ekki alveg hversu mikið mark er takandi á þessum David Hoskin hjá Eye-for-Image því samkvæmt mbl.is segir hann að Ísland sem vörumerki hafi fyrir hrunið ekki verið sérlega þekkt eða sterkt og nefnir máli sínu til stuðnings að í huga flestra tengist Ísland nú annars vegar fiskveiðum og hins vegar fjármálum. Fyrir utan þetta tvennt vita menn á heimsvísu afar lítið um Ísland." Þessa ályktun mannsins dreg ég stórlega í efa og samkvæmt könnun sem Útflutningsráð og Ferðamálastofa létu gera í þremur löndum, Bretlandi, Danmörku og Þýskalandi er það náttúran fyrst og fremst sem Ísland er þekkt fyrir. Hagkerfið er langt fyrir aftan í öðru sæti yfir það sem upp kemur í hugann hjá fólki þegar Ísland er nefnt og þar á eftir kemur landafræði og menning.
Það er einmitt náttúran og menningin sem getur bjargað ímynd Íslands á ný. En þá megum við ekki eyðileggja náttúruna eins og fyrri ríkisstjórnir D og B lista unnu ötullega að. Tónlist, myndlist, leiklist og bókmenntir geta svo áfram byggt upp til jákvæða ímynd af Íslandi og þar er fjársjóður sem við eigum að nýta og við þurfum ekki að eyðileggja neitt.
![]() |
Ímynd Íslands er sterk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?