12.2.2010 | 22:33
Fréttabréf SÍM frá því í desember 2009
Af gefnu tilefni birti ég hér fréttabréf SÍM frá því desember.
Kæru myndlistarmenn
Fyrir hönd stjórnar SÍM vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Reyndar eru aðeins tæpir þrír mánuðir frá því að ég tók við sem formaður SÍM, en þetta virkar eins og enn lengri tími enda hefur margt gerst á þessum stutta tíma. Aukaaðalfundur var haldinn í Norrænahúsinu þann 15. september 2009. Þar var Áslaugu Thorlacius þökkuð vel unnin störf sem formaður SÍM til margar ára.
Stjórn SÍM hefur hittst fjórum sinnum frá aukaaðalfundinum en einnig verið í tölvupóst- og símasambandi eftir því sem þurft hefur. Við ætlum að hafa opinn félagsfund þann 17. desember og stefnum að því að hafa reglulega spjallfundi með félagsmönnum þar sem hægt verður að ræða hagsmunamál myndlistarmanna og hvað við getum gert betur.
Mótmæli við Gallerí Fold
Eitt fyrsta verkefni okkar var að efna til mótmæla við Gallerí Fold sem hafði ekki greitt fylgiréttargjöld af sölu á verkum á uppboðum. Lög kveða á um að 10% gjald af sölu höfundarverka í endursölu gangi til listamannsins, eða handhafa höfundaréttar. Mótmælin heppnuðust afar vel og vöktu athygli og galleríið greiddi strax daginn eftir þessi gjöld af síðasta uppboði. Rekstrarfélag Gallerí Foldar var hinsvegar tekið til gjaldþrotameðferðar í ágúst og þar liggja nú skuldir uppá margar milljónir sem reynt verður að fá greiddar. Myndstef er að vinna í þeim málum. Það er því mikilvægt að fylgiréttargjöldin séu greidd strax og reglulega og við munum fylgjast með því að Gallerí Fold og aðrir sem efna til uppboða á listaverkum standi í skilum. Ef ekki þá munum við mótmæla af enn meiri krafti enda er hér um augljós lögbrot að ræða.
Vinnustofur
Margir myndlistarmenn eru á biðlista eftir vinnustofum og skoðaðir hafa verið möguleikar á leigu á húsnæði. Ekki er komin niðurstaða í það mál en nokkrir kostir hafa verið skoðaðir. Rekstur Seljavegarins stendur undir sér og það sama er að segja um Korpúlfsstaði. Á Seljavegi eru 48listamenn með vinnustofur og 44 á Korpúlfsstöðum, en þar fyrir utan hafa fleiri afnot af leirlistaverkstæðinu og textílverkstæðinu.
Gestavinnustofur SÍM og KulturKontakt Nord
Metþátttaka var í umsóknum um dvöl í gestavinnustofum SÍM meðdvalar- og ferðastyrk frá KulturKontakt Nord, alls bárust 147 umsóknir og stærsti hlutinn frá afar hæfum myndlistarmönnum. 12 listamenn munu dvelja hjá okkur á næsta ári með þessum styrk, en þeir eru:
Janúar: Heidi Hove og Jens Axel Beck frá Danmörku
Febrúar: Vigdis Haugtrö frá Noregi
Mars: Voldemars Johansons frá Lettlandi
Apríl: Laura Feldberga frá Lettlandi
Júní: Torgeir Husevaag og Catrine Thorstensson frá Noregi
Júlí: Monica Höll frá Svíþjóð
Ágúst: Sari Lievonen frá Finnlandi
September: Björn Hegardt frá Noregi
Október: Karlin Tampere frá Svíþjóð
Nóvember: Jan Christensen frá Noregi
Alls hafa rúmlega 90 gestalistamenn komið og dvalið í gestvinnustofum á Seljavegi og Korpúlfsstöðum á árinu. Af þessum listamönnum hafa 6 verið með styrk frá KKN, en þeir eru Jukka Korkeila, Maurice Blok og fjórir af meðlimum Ykon hópsins, allir frá Finnlandi. Margir hafa haldið sýningar í lok dvalar sinnar eða fyrirlestra og stefnt er að því að kynna þá enn betur á næsta ári svo að dvölin nýtist þeim meira og einnig að listamenn hér fái að kynnast þeim og verkum þeirra betur.
Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar
Þuríður Sigurðardóttir er fulltrúi BÍL og okkar í Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Eyrúni Sigurðardóttur var valin í fagnefnd Menningar- og ferðamálaráðs fyrir hönd BÍL. Á síðasta ári áttum við ekki fulltrúa í fagnefndinni og því sérstaklega ánægjulegt að Eyrún hafi verið valin.
Listamenn mánaðarins frá janúar - júní 2010
Búið að draga út þá sem verða með kynningu á verkum sínum í SÍM húsinu á fyrrihluta næsta árs. Þau eru: Hafdís Ólafsdóttir, Sigríður Rut Hreinsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Inga Sólveig Friðjónsdóttir, Erna G. Sigurðardóttir og Magnús Helgason.
Listamannalaun
Launasjóður myndlistarmanna stækkar um næstum 10 árslaun eða úr 26 árslaunum og 8 mánaðarlaunum á ári í 36 árslaun og 3 mánaðarlaun. Þetta mun gerast á 3 árum. 40 mánuðir bætast við á næsta ári, aðrir 40 árið 2011 og síðustu 35 árið 2012. Þetta er skref í rétta átt og afar ánægjulegt að stjórnvöld skuli á þrengingartímum sjá að myndlist sé afar atvinnuskapandi og að listamannalaun fara beint út í samfélagið og skapa mun fleiri störf en sem nemur þeim mánuðum sem úthlutað er.
Stefnumótun
Stefnumótunarhópur myndlistarmanna og arkitekta hefur tekið nokkrum breytingum og fulltrúar okkar þar eru Ásmundur Ásmundsson, Haraldur Jónsson og Ragna Sigurðardóttir. Þau munu skila niðurstöðum í byrjun næsta árs.
Muggur
Úthlutanir úr ferðasjóði SÍM og Reykjavíkurborgar fór fram í október og eftirtaldir myndlistarmenn hlutu styrk: Anna Gunnarsdóttir, Bjargey Ólafsdóttir, Einar Garibaldi, Eirún Sigurðardóttir, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Guðjón Bjarnason, Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Haraldur Jónsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Hulda Rós Guðnadóttir, Jóhanna Bogadóttir, Jóní Jónsdóttir, Kristín S. Garðarsdóttir , Laufey Arna Johansen, Margrét Sossa Björnsdóttir, Pétur Thomsen, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Steinunn Þórarinsdóttir, Unnar Örn J. Auðarson og Valgerður Hauksdóttir.
Fundur með menntamálnefnd Alþingis
Ingibjörg og Þuríður áttu fund með menntamálanefnd Alþingis og lögðu þar áherslu á mikilvægi starfs Sambands íslenskra myndlistarmanna og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Góður rómur var gerður að máli þeirra og við vonum að niðurskurður á framlögum til SÍM verði ekki meiri en nauðsyn ber til.
Fundur með mennta- og menningarmálaráðherra
Hlynur, Ingibjörg, Birta og Ingirafn fóru á fund með Katrínu Jakobsdóttur ráðherra og ræddu málefni SÍM, KÍM og Listskreytingarsjóðs og einnig heiðurslaun Alþingis, skattamál og myndlistarkennslu í skólum. Ráðherra tók afar vel í hugmyndir okkar og við munum fylgja okkar baráttumálum eftir á næstu mánuðum.
Fundur með stjórn Félags listfræðinga
Stjórn SÍM fundaði með stjórn Félags listfræðinga, þeim Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur, Gunnari J. Árnasyni og Shauna Laurel Jones. Við fögnum stofnun félagsins og rætt var um samvinnu félaganna og mögulega samstarfsfleti. Með stofnun félagsins mun fagleg umræða um myndlist vonandi aukast og batna.
SÍM og UMM á netinu
Kannaðir hafa verið möguleikar á að gera sim.is síðuna aðgengilegri og betri og bæta útlit og skipulag hennar. Vonandi gerist þetta á næstu mánuðum. Það sama má segja um umm.is síðuna. Hún er mikið notuð og er oft ein fyrsta síðan sem kemur upp í leitarvélum. Útlit hennar er hinsvegar komið til ára sinna og stefnt er að því að gera hana betri án mikils tilkostnaðar. Það byggist svo á myndlistarmönnum hvað þeir vilja uppfæra upplýsingar um sig reglulega.
Aðalfundur í byrjun mars og málþing um myndlist
Stefnt er að því að halda aðalfund SÍM laugardaginn 6. mars og halda málþing um myndlist sama dag. Nýta tækifærið til að fá jákvæða og uppbyggilega umræðu um það sem betur má fara og það sem brennur á myndlistarmönnum og bjóða til þátttöku fjölbreyttum hópi fólks einnig frá fjölmiðlum og ráðamönnum.
Samband íslenskra myndlistarmanna eru hagsmunasamtökin okkar og hugmyndir og ábendingar eru vel þegnar. Best er að hafa samband við skrifstofu SÍM, senda tölvupóst á sim(hjá)sim.is eða á hlynur(hjá)sim.is
Með bestu kveðjum,
Hlynur Hallsson, formaður SÍM
9.1.2010 | 21:40
Temporäre Kunsthalle í Berlín
Sýningu Karen Sander í Temporäre Kunsthalle í Berlín sem ber titilinn Zeigen lýkur sunnudaginn 10. janúar 2010. Karen bauð hátt í sexhundruð listmönnum í Berlín að taka þátt í þessu verki, senda inn hljóðupptöku sem verk og það er hægt að hlusta á verkin á staðnum. Nöfn listamannanna eru prentuð í langri röð eftir veggjunum og við hvert nafn er númer sem hægt er að slá inn í þar til gerða spilara og hlusta þannig á framlag hvers listamanns.
Þetta er frábær sýning verð ég að segja þó að ég sé ekki alveg hlutlaus sem einn af þátttakendum:) Ég fór tvisvar á hana og varði dágóðum tíma í að hlusta á verkin og hefði viljað verja enn lengri tíma í það.
Hér eru tenglar á nokkrar umfjallanir um sýninguna og listinn yfir alla listamennina sem taka þátt.

Saâdane Afif, Carla Åhlander / Gernot Wieland, Nader Ahriman, Nevin Aladag, Stefan Alber, Erik Alblas, Sonja Alhäuser, Bettina Allamoda, Heather Allen, Pablo Alonso, D-L Alvarez, Matthew Antezzo, John Armleder, Ole Aselmann, Martin Assig, Marius Babias, Mona Babl, Elvira Bach, Florian Bach, Frank Badur, Fritz Balthaus, Heike Baranowsky, Gabriele Basch / Maurice de Martin, Rui Calçada Bastos, Florian Baudrexel, Michael Bause, T.R. Becker, Tjorg Douglas Beer, Birgit Bellmann, Benjamin Bergmann, Christine Berndt, Anne Berning, Michael Beutler, Nicole Bianchet, Gerry Bibby, Marc Bijl, Norbert Bisky, Caroline Bittermann, Kristleifur Björnsson, John Bock, Katinka Bock, Armin Boehm, Hartmut Böhm, Heike Bollig, Monica Bonvicini, Shannon Bool, Susanne Bosch, Pauline Boudry / Renate Lorenz, Daniela Brahm, Marc Brandenburg, Monika Brandmeier, Barbara Breitenfellner, Mari Brellochs, Micha Brendel, Birgit Brenner, Agnieszka Brzezanska, Nine Budde, Matthew Burbidge, BURGHARD, Katarina Burin, Stefanie Bürkle, Susanne Bürner, André Butzer, Pash Buzari, Janet Cardiff / George Bures Miller, Eva Castringius, Libia Castro & Ólafur Ólafsson, Antonio Catelani, Jessica Centner, Paolo Chiasera / Alex Trebo, Helen Cho, Clegg & Guttmann, Kerstin Cmelka, Daniela Comani, Martin Conrads, Martin Conrath / Marion Kreißler, Natalie Czech, Camilla Dahl, Björn Dahlem, Martin Dammann, Mariechen Danz, Paul Darius, Ronald de Bloeme, Michel de Broin, Christine de la Garenne, Jana Debrodt, Christiane Dellbrügge & Ralf de Moll, Dieter Detzner, Frank Diersch, Peter Dittmer, Ursula Döbereiner, Peter Dobroschke, Jason Dodge, Paula Doepfner, Christina Doll, Tatjana Doll, A K Dolven, Johanna Domke, Antje Dorn / Lukas Lonski, Hannah Dougherty, Margarete Dreher, Ruprecht Dreher, Jürgen Drescher, Arnold Dreyblatt, Sven Drühl, Peter Duka, Jimmy Durham, Mikala Dwyer, Bogomir Ecker, Knut Eckstein, Maria Eichhorn, Frauke Eigen, Dörte Eißfeldt, Paul Ekaitz, Nezaket Ekici, Robert Elfgen, Thomas Eller, Elmgreen & Dragset, Slawomir Elsner, Annika Eriksson, Ayse Erkmen, Esra Ersen, Ueli Etter, EVA & ADELE, Simon Faithfull, Faller / Mieth / Stüssi / Weck, Anna Fasshauer, Valérie Favre, Friederike Feldmann, Peter Fend, Rainer Fetting, Berta Fischer, Nina Fischer & Maroan el Sani, Wolfgang Flad, Ulrike Flaig, Christian Flamm, Jean Pascal Flavien, Thomas Florschuetz & Carla Guagliardi, Carsten Fock, Gunda Förster, Olivier Foulon, Heiner Franzen, Hanna Frenzel, Marten Frerichs, Pia Fries / Hans Brändli, Barbara Frieß, Bernard Frize, Tom Früchtl, Simon Fujiwara, Tine Furler, Taro Furukata, Dani Gal, Heike Gallmeier, Bernhard Garbert, Kati Gausmann, Axel Geis, Stella Geppert, Patrycja German, Torben Giehler, Milena Gierke, Andrew Gilbert, Annette Gödde, Claus Goedicke, Thorsten Goldberg, Undine Goldberg, Erik Göngrich, Delia Gonzalez, Douglas Gordon, Kerstin Gottschalk, Sabine Groß, Katharina Grosse / Michael E. Smith, Lilly Grote, Asta Gröting, Eva Grubinger, Beate Gütschow, Terry Haggerty, Mathew Hale, Hlynur Hallsson, Atalayman Haluk, Friederike Hamann, Sebastian Hammwöhner, Jens Hanke, Elín Hansdóttir, Erla S. Haraldsdottir, Joe Hardesty, Ellen Harvey, Bertram Hasenauer, Christian Hasucha, Mona Hatoum, Tobias Hauser / Hermann Bohlen, Elisabeth Hautmann, Eberhard Havekost, Claire Healy & Sean Cordeiro, Swetlana Heger / Billy Davis, Isabel Heimerdinger, Valeria Heisenberg, Hans Hemmert, Uwe Henneken, Anton Henning, Knut Henrik Henriksen, Arturo Herrera, Swantje Hielscher, Gregor Hildebrandt, Veronike Hinsberg, Moritz Hirsch, Franz Hoefner & Harry Sachs, Christian Hoischen, Karl Holmqvist, Olaf Holzapfel, Alexandra Hopf, Laura Horelli / Anu Pennanen, Ute Hörner & Mathias Antlfinger, Sabine Hornig, Franka Hörnschemeyer, Satch Hoyt, Felix Stephan Huber, Patrick Huber, Nicolai Huch, Markus Huemer, Elvira Hufschmid, Sofia Hultén, Hideaki Idetski, Leiko Ikemura, John Isaacs, Jeroen Jacobs, Dani Jakob, Christian Jankowski, Monika Jarecka, Mona Jas & Holger Friese, Olaf Christopher Jenssen, Sven-Åke Johansson, Rolf Julius, Stephanie Jünemann, Stephan Jung, Lisa Junghanß, Johannes Kahrs, Ilona Kálnoky, Sejla Kameric, Helmut & Johanna Kandl, Eckhard Karnauke, Katharina Karrenberg, Silke Kästner, Veronika Kellndorfer, Isabel Kerkermeier, Iris Kettner, Waszem Khan, Shila Khatami, Thomas Kiesewetter, Dietmar Kirves, Christiane Klatt, Astrid Klein, Gisela Kleinlein, Heike Klussmann, Paco Knöller, Daniel Knorr, Folke Köbberling & Martin Kaltwasser, Andreas Koch, Peter K. Koch, Takehito Koganezawa, Susanne Kohler, Karsten Konrad, Korpys / Löffler, Katarzyna Kozyra, Pauline Kraneis, Ullrich Kraus, Wolfgang Krause, Clemens Krauss, Susanne Kriemann, Käthe Kruse, Christina Kubisch, Coco Kühn, Raimund Kummer, Michael Kunze, Ulrike Kuschel, Susanne Kutter, Alicja Kwade, Marcellvs L., Nick Laessing, Christin Lahr, David Lamelas, Mark Lammert, Pia Lanzinger, Sami Ben Larbi, Tim Lee, Gerda Leopold, Via Lewandowsky, Alexandra Leykauf, Axel Lieber, Deborah Ligorio, María Linares, Ute Lindner, Nikolaus List, Thomas Locher, Wiebke Loeper, Adrian Lohmüller, Susanne Lorenz, Darri Lorenzen, Antonia Low, Robert Lucander, Dieter Lutsch, Ute Mahling, Inge Mahn / Katrin Albrecht / Valentin Hertweck , Antje Majewski, Katrin von Maltzahn, Simone Mangos, Matthias Mansen, Angelika Margull, Rémy Markowitsch, Bernhard Martin, Yvette Mattern, Hans-Jörg Mayer, Matthias Mayer, Christoph Mayer chm. / Andreas Hagelüken u.a., Josephine Meckseper, Jonathan Meese, Birgit Megerle, Sandra Meisel, Bjørn Melhus, Isa Melsheimer, Florian Merkel / Jasmin Schwarz / BEEP OFF, Arwed Messmer, Yves Mettler, Dörte Meyer, Nanne Meyer, Angelika Middendorf, Ricarda Mieth, Boris Mikhailov, Yana Milev, Gerold Miller, John Miller, Igor Mischiyev, Dane Mitchell, Martin Mlecko, Christiane Möbus, Ulrike Mohr, Martin Mohr, Regina Möller, Jonathan Monk, Stephan Mörsch, Sofie Bird Møller, Jan Muche, Christl Mudrak, Wolfgang Müller, Peter Müller, Michael Müller, Matt Mullican, Anca Munteanu-Rimnic, Piotr Nathan, Hajnal Németh, Ursula Neugebauer, Neulant van Exel, Carsten Nicolai, Karina Nimmerfall, Astrid Nippoldt, Ann Noël, Jens Nordmann, Silke Nowak, Hester Oerlemans, Roman Ondak, Aya Onodera, Michael Otto, Amy Patton, Antonio Gonzales Paucar, Manfred Peckl, João Penalva, Manfred Pernice, Sandra Peters, Kristian Petersen, Mario Pfeifer, Katja Pfeiffer, Pfelder, Daniel Pflumm, Andrea Pichl, Katinka Pilscheur, Hermann Pitz, Nina Pohl, Marco Poloni, David Polzin, Sophia Pompéry, Lynn Pook & Julien Clauss, Bettina Pousttchi, Prinz Gholam, Peter Pumpler, Norbert Radermacher, Fritz Rahmann, Alexandra Ranner, Rebecca Raue, raumtaktik, von Borries / Böttger, Haleh Redjaian, Dodi Reifenberg, Inken Reinert, Berthold Reiß, Andreas Reiter Raabe, Thomas Rentmeister, Cornelia Renz / Laura Bruce, Gunter Reski, Mandla Reuter, Reynold Reynolds, Bernd Ribbeck, Tanja Rochelmeyer, Gerwald Rockenschaub, Kirstine Roepstorff, Ursula Rogg, Stefan Römer, Maya Roos, Peter Rösel, Jenny Rosemeyer, Rosen / Wojnar, Aura Rosenberg, Angela Rosenberg, Fried Rosenstock, Roth Stauffenberg, Miguel Rothschild, Steven Rowell, Annette Ruenzler, Egill Sæbjörnsson, Stefan Saffer, Anri Sala, Dean Sameshima, Maike Sander, Yorgos Sapountzis, Yehudit Sasportas, Matt Saunders, Eran Schaerf, Albrecht Schäfer, Sophia Schama, Gerda Scheepers, Jutta Scheiner, Andreas Schimanski, Hanns Schimansky, Cornelia Schleime, Ariel Schlesinger, Sebastiaan Schlicher, Les Schliesser, Gesine Schmauder, Regina Schmeken, Gunna Schmidt, Tomas Schmit, Ralf Schmitt, Gregor Schneider, Albrecht Schnider, Dennis Scholl, Frances Scholz, Eva Maria Schön, Jo Schöpfer, Henrik Schrat, Michael Schultze, Tilo Schulz, Alexandra Schumacher, Veronika Schumacher, Martina Schumacher, Hanna Schwarz, Daniel Seiple, Andreas Sell, Aurelia Sellin, Marcus Sendlinger, Eva Seufert, Catriona Shaw, Amie Siegel, Judith Siegmund, Wiebke Siem, Katharina Sieverding, Markus Sixay, Jim Skuldt, Andreas Slominski, Florian Slotawa, Raaf van der Sman, Christopher Snee, Juliane Solmsdorf, Astrid Sourkova / Markus Selg, Heidi Specker, Thomas Spielmann, Andrea Splisgar, Rainer Splitt, Martin Städeli, Klaus Staeck, Raimar Stange, Tim Stapel, Simon Starling, Julia Staszak /Olaf Mach, Erik Steinbrecher, Bente Stokke, Fiete Stolte, Roland Stratmann, Josef Strau, Jaro Straub, Marlene Streeruwitz, Katja Strunz, Asli Sungu, Shanghay Surbir, Anita Tarnutzer, Vincent Tavenne, Mathilde ter Heijne, Benedikt Terwiel, Stefan Thiel, Mirjam Thomann, Bernhard Thome, Jan Timme, Rirkrit Tiravanija, Wawrzyniec Tokarski, Christian Tonner, Bernd Trasberger, Petra Trenkel, Luca Trevisani, Mette Tronvoll, Sandra Truté, Nasan Tur, Jochen Twelker, Timm Ulrichs, Malte Urbschat, Ignacio Uriarte, Marcel van Eeden, Maria Vedder, Vlado Velkov, Till Velten, Johannes Vogl, Gabriel Vormstein, Gunnar Voss, Simon Wachsmuth, Alexander Wagner, Rolf Walz, Tian Tian Wang, Fu Wang, Ryszard Wasko, Corinne Wasmuht, Suse Weber, Heike Weber, Ina Weber, Clemens von Wedemeyer, Markus Weggenmann, Susanne Weirich, Albert Weis, Ute Weiss Leder, Peter Welz , Tilmann Wendland, Matthias Wermke / Mischa Leinkauf, Maja Weyermann, Suse Wiegand, Claudia Wieser, Eva-Maria Wilde, Berndt Wilde, Stephen Wilks , Barbara Wille, Klaus Winichner, Markus Wirthmann, Anna Witt, Karsten Wittke, Johannes Wohnseifer, Jens Wolf, Alexander Wolff, Ming Wong, Christine Würmell, Florian Wüst, Paola Yacoup, Ekrem Yalcindag, Haegue Yang, Qin Yufen, Simone Zaugg, Holly Zausner, Francis Zeischegg, Georg Zey, Ralf Ziervogel, David Zink Yi, Annett Zinsmeister, Christina Zück, Christof Zwiener.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2009 | 13:47
Ríkið bjargar BYR
Þetta er skrítinn heimur. Við vorum einhvertíma búin að fá nóg af Glitni og endalausu auglýsingaskrumi þaðan og ákváðum að flytja okkar viðskipti yfir í Sparisjóð Norðlendinga. Það er samt hægara sagt en gert en skipta alveg um banka. Síðan gerist það nokkrum misserum síðar að Sparisjóðurinn okkar rennur inn í eitthvert bákn sem heitir BYR. Það voru einhverjir stofnfjáreigendur sem ætluðu heldur betur að græða á "góðæristímanum" (lesist sukk- og bruðl tíma sjálfstæðisFLokksins).
Svo hrundi allt draslið og þá var Glitni breytti aftur í Íslandsbanka og nú er ríkið líka búið að bjarga BYR. Ég sakna Alþýðubankans, það var almennilegur banki sem eyddi ekki og bruðlaði í óþarfa heldur lánaði bara peninga og ávaxtaði krónurnar manns skynsamlega. Er ekki kominn tími til að stofna nýjan Alþýðubanka?
![]() |
Byr fjórði ríkisbankinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.12.2009 | 10:43
Af hverju er Svafa að hætta?
Það sem vantar í þessa frétt er svarið við spurningunni af hverju Svafa sé að hætta eftir aðeins þrjú ár í starfi rektors HR? Þessi fréttatilkynning frá HR er eins og tilkynningarnar þegar Baldur forstjóri Eimskips hætti "í mesta bróðerni því hann hafði unnið svo gott starf". Er Svafa búin að fá nóg af þessu starfi? Kom hún sínum áherslum ekki að? ER hún að fara í annað og miklu betra starf? Hvað er málið? Af hverju ber þetta svona brátt að? Svör óskast.
![]() |
Rektorsskipti í HR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.12.2009 | 10:34
Gott mál
Það þarf að skera niður í útgjöldum ríkisins eftir allt sukkið og klúðrið hjá sjálfstæðisFLokknum og þá er eðlilegt að þingflokkarnir dragi einnig saman umsvifin. Hinsvegar er nauðsynlegt fyrir lýðræðið að einhverjir peningar komi frá sameiginlegum sjóðum en ekki bara frá ríkum einstaklingum eða fyrirtækjum og hópum sem vilja beita áhrifum sínum. Það er víða hægt að spara í útgjöldum ríkisins og þessi tillaga meirihluta fjárlaganefndar er skref í rétta átt. Ég tel það eðlilegt að skera einnig niður framlag til stjórnmálaflokkanna ekki bara þingflokka og ráðherra.
![]() |
Framlag til þingflokka og ráðherra skert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 07:58
Og hverjum er það "að þakka"?
Já, við þurfum að búa okkur undir verulega skerðingu lífskjara og kaupmáttar næstu árin og getum þakkað það alfarið sjálfstæðiFLokknum. SjálfstæðisFLokkurinn ber höfuðábyrgð á IceSave klúðrinu frá upphafi til enda en viðurkennir auðvitað ekki ábyrgð sína. Bjarni Ben var búinn að kvitta uppá samning við Breta og Hollendinga sem var miklu óhagstæðari en sá sem Indriði og félagar náðu fram. Samt er þetta auðvitað vondur samningur fyrir okkur, það vita allir, en um leið það skásta sem er í boði. Daniel Gros fulltrúi Framsóknarflokksins í bankaráði Seðlabankans veit það örugglega líka, hitt hljómar bara sennilega betur í eyrum vina hans.
Það sama hversu mikið við erum á móti því að borga skuldir Landsbankans til innistæðueigenda í Bretlandi og Hollandi þá er það lagalega og auðvitað einnig siðferðislega réttlætanlegt að gera það, því miður. Það var okkar regluverk sem brást, regluverk sem sjálfstæðisFLokkurinn kom á ásamt Framsóknarflokknum. Er einhver búinn að gleyma því þegar Ögmundur Jónasson var úthrópaður fyrir að vilja að bankarnir flyttu útibúin sín til meginlandsins og skráðu þau þar? "Viltu flytja bankana úr landi?" spurðu þingmenn þáverandi meirihluta í forundran og hneyksluðust mikið á honum.
Það hefði verið einfalt mál að setja lög um að bankarnir mættu ekki stofna "útibú" í öðrum löndum heldur ættu að stofna þar sjálfstæða banka, en það var ekki gert og við munum lengi súpa seyðið af því, þökk sé Davíð Oddssyni og vinum hans í FLokknum.
![]() |
Skert lífskjör og kaupmáttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2009 | 15:04
Sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Kunstraum Wohnraum að ljúka
AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR
RÉTTARDAGUR 50. SÝNINGA RÖÐ
04.10. - 06.12.2009
Opið samkvæmt samkomulagi
KUNSTRAUM WOHNRAUM
Hlynur Hallsson Kristín Kjartansdóttir
Ásabyggð 2 IS-600 Akureyri +354 4623744
hlynur(hjá)gmx.net www.hallsson.de
Sunnudaginn 6. desember 2009 lýkur sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur Réttardagur 50 sýninga röð í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.
Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund.
Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist "Réttardagur 50 sýninga röð". Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Sýningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um þá menningu sem skapast um og frá sauðkindinni.
Myndir af verkum Aðalheiðar og upplýsingar eru á síðunni www.freyjulundur.is
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091 og í adalheidur@freyjulundur.is
Kunstraum Wohnraum hefur verið starfrækt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Það er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggð 2. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur er opin eftir samkomulagi og hægt er að hringja í síma 462 3744.
Nánari upplýsingar um Kunstraum Wohnraum er að finna á: http://www.hallsson.de/projects/kunstraum_wohnraum/kunstraum_wohnraum.html
25.11.2009 | 13:36
Tyggjó - Kaugummi - Chewing gum
Tyggjó frá 2007. Lóa lék aðalhlutverkið. Ég notaði verkið fyrir sýningu í DaLí Gallery sama ár og svo fyrir samsýninguna Equivalence í Lazareti - Galerija OTOK í Dubrovnik í Króatíu sumarið 2008 sem Ransu skipulagði.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2009 | 23:14
Karlarnir í KSÍ segi af sér
Karlarnir í stjórn Knattspyrnusambands Íslands virðast ekki vera að fatta hlutina. Það er eitthvað bogið við siðferðið á þeim bænum (sem kemur ef til vill ekki á óvart miðað við það sem hefur verið í gangi síðustu árin). En hér hitta karlarnir ekki í mark, reyndar dálitið langt framhjá og sennilega auk þess rangstæðir, allir. Þeir eru búnir að fá gula spjaldið og nú er komið að því rauða: Útaf með stjórn KSÍ, þessir karlar eru ekki starfi sínu vaxnir og geta ekki verið í forsvari lengur. Er ekki tilvalið að ný stjórn verði skipuð fleiri konum sem hafa einhverja siðferðiskennd og það hlýtur að vera hægt að finna karla sem einnig eru búnir þeim ágæta eiginleika. Gott að þeir báðust samt afsökunar, það ber vott um smá iðrun.
Hér eru umfjallanir um málið:
DV skrifar um fundinn: KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum
Rúv um viðbrögðin: Afgreiðsla KSÍ hlægileg
Vísir.is vitnar í Guðnýju Gústafsdóttur: Efast um að stjórn KSÍ geti samið siðareglur
DV með niðurstöðuna: KSÍ mun ekki aðhafast neitt - biður þjóðina afsökunar
Katrín Rut Bessadóttir skrifaði ljómandi pistil á Smuguna um málið
Já, og hvaða refsingu hlaut fjármálastjórinn aftur?
![]() |
Stjórn KSÍ aðhefst ekki frekar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2009 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2009 | 22:35
Opnun í Big Wheel Studios í Vordingborg
HLYNUR HALLSSON
VAR HÉR - WAR HIER - WAS HERE - VAR HER
09.10.- 23.10.2009
Big Wheel Studios, Vordingborg, Danmark
Big Wheel Studios byder til fernisering på:
VAR HÉR - WAR HIER - WAS HERE - VAR HER
af den islandske samtidskunstner Hlynur Hallsson
Fredag d. 9. oktober kl. 16
Big Wheel Studios // Oringe // Færgegårdsvej 15 // 4760 Vordingborg // Danmark
Udstillingen er åben fredage ml 16-18 og efter aftale med Gitte Nielsen
www.bigwheelplay.blogspot.com
Hlynur Hallsson er født i Akureyri, Island 1968. Han har studerede Kunst i Island og i Tyskland.
Hlynur har udstillet på Overgaden og på Charlottenborg i København og nu sidst í
Living Art Museum, Reykjavik samt Reykjavík Art Museum.
Hlynur fik i 1997 en pris i Kunstverein Hannover for unge kunstnere og modtog i 2006 Sparda Bank prisen.
Hlynur arbejder med situationer, tekst, fotos, performance, installationer og hvad som helst, som passer til lokationen.
I Big Wheel Studios viser han tekst på væg, foto og video. Yderligere oplysninger findes på:
http://www.galerie-robert-drees.de
Sjálfið er hringur, og miðpunktur hans er alls staðar en ummál hans er hvergi.
Sjálfið er innri Guð.
...
Sjálfið er markmið lífs okkar, því það er fyllsta tjáning þeirrar örlagaríku samsetningar sem við köllum einstaklinginn. C. G. Jung
Tilvísun fyrir Hlyn Hallsson
Ég er algjörlega ráðþrota gagnvart tilfelli Hlyns Hallssonar.
Hann býr yfir krafti og persónutöfrum og dularfullri skapfestu, sem ásamt dæmigerðu íslensku mikilmennskubrjálæði gefur sterklega til kynna að hann sé listamaður, en ég er ekki ennþá viss. Ég hef hitt hann á einkafundum nokkrum sinnum og játa að minningar úr bernsku hans gefa ekki til kynna um að annað sé í spilunum.
Ef grunur minn reynist réttur um að Hlynur sé listamaður, þá er hann alveg örugglega ekki Guð. Um það er ég hins vegar heldur ekki alveg viss. Hlynur virðist búa yfir alltmöguleika. Þetta er auðséð af fjölbreytileika verka hans. Í margvíslegum eldri spreyverkum sínum hefur hann ráðist með beinskeyttum og tvíræðum hætti gegn dímónum samtímans. Í núverandi innsetningu tekur hann fyrir hreina tvískiptingu kynjanna og hugmyndina um að kynin verði að fylgja táknmyndum sínum. Með einföldum hætti ruglar Hlynur saman reitunum og Sjá!, táknin hafa verið aðskilin frá kynjunum og stjórna ekki lengur.
Þetta gerir Hlynur léttilega. Ekki léttvæglega. Það er eitthvað ótrúlega mystískt við þennan einfaldleika.
Og ekki má gleyma: þessi hæfileiki, almöguleikinn, leyfir honum líka að vera nálægur á fleiri en einum stað á sama tíma, sannkallað afreksverk.
Einungis þetta er víst: þetta er ekki kapella, þetta var baðherbergi.
Hjámar Brynjólfsson
29.9.2009 | 13:40
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir í Kunstraum Wohnraum
AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR
RÉTTARDAGUR 50. SÝNINGA RÖÐ
04.10. - 06.12.2009
Opnun sunnudaginn 4. október 2009, klukkan 11-13
Eröffnung am Sonntag 4. Oktober 2009, 11-13 Uhr
Preview on Sunday October 4th. 2009, at 11-13
Opið samkvæmt samkomulagi Geöffnet nach Vereinbarung Open on appointment
KUNSTRAUM WOHNRAUM
Hlynur Hallsson Kristín Kjartansdóttir
Ásabyggð 2 IS-600 Akureyri +354 4623744
hlynur(hjá)gmx.net www.hallsson.de
Sunnudaginn 4. október 2009 klukkan 11-13 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna Réttardagur 50 sýninga röð í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.
Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund.
Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist "Réttardagur 50 sýninga röð". Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Sýningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um þá menningu sem skapast um og frá sauðkindinni.
Næstu sýningar verða í Stuttgart, London, Aðventa í Freyjulundi og Berlín.
Myndir af verkum Aðalheiðar og upplýsingar eru á síðunni www.freyjulundur.is
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091 og í adalheidur(hjá)freyjulundur.is
Kunstraum Wohnraum hefur verið starfrækt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Það er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggð 2. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur stendur til 6. desember 2009 og er opin eftir samkomulagi og hægt er að hringja í síma 462 3744.
Nánari upplýsingar um Kunstraum Wohnraum er að finna hér.
15.9.2009 | 14:59
Að losa fé...
Þetta hefur maður nú heyrt áður... hvenær var það aftur... ef til vill 2007? Að losa fé, fé án hirðis og svo bara fundið fé eru frasar sem fulltrúar SjálfstæðisFLokksins, hrunflokksins, hafa notað óspart. Þessi samningur við skúffufyrirtækið er undarlegur og það að selja á versta tíma er auðvitað glapræði. Það er verið að gefa auðlindirnar til fjárglæframanna. Er það ekki kaldhæðnislegt að flokkarnir sem komu okkur í skítinn og skyldu okkur eftir í skuldafeni skuli áfram fá að haga sér eins og þeim sýnist? Er ekki komið nóg?
![]() |
Hróp gerð að borgarstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.9.2009 | 12:17
Lífróður: málþing í Hafnarborg
Það er afar ánægjulegt hversu vel tókst til með strandveiðina þetta sumarið. Auðvitað má laga margt og bæta en á heildina hafa strandveiðarnar fært líf aftur í sjávarbyggðirnar.
Í dag klukkan 13-16 verður haldið málþing í Hafnarborg á vegum Þjóðfræðistofu um hafið í orðræðu og sjálfsmynd Íslendinga.
Ég ætla að hoppa uppí strætó núna til Hafnarfjarðar en hér er dagskrá málþingsins:
Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar,
Ávarp um hafið og sýninguna Lífróður
Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu
Lagt úr höfn
Ingibjörg Þórisdóttir, dramatúrg:
Logn er fyrir lyddur: íslensk leikrit og hafið
Terry Gunnell, þjóðfræðingur:
Innrás hinna utanaðkomandi dauðu: sagnir um sjórekin lík á Íslandi
Sigurjón B. Hafsteinson, mannfræðingur:
Ótti af hafi
HLÉ
Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur (með tónlistarflutningi Svavars Knúts):
Og nýja í næstu höfn...: staða og ímynd kvenna í sjómannalögum
Haraldur Jónsson, myndlistarmaður:
Að ganga í sjóinn. Vangaveltur um það sem umkringir okkur
Hlynur Hallsson:
Tungumál, stjórnmál, sjómennska og myndlist
Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson, sýningarstjórar,
Sagt frá sýningunni
Spjall með fyrirlesurum og aðstandendum sýningarinnar
![]() |
Sædísin aflahæst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2009 | 12:12
Dear Iceland, fuck you, yours truly, aluminium
Svona er setningin óritskoðuð sem Saving Icaland hengdi á vinnupalla utan á Hallgrímskirkju í morgun. Eyjan birtir mynd og ritskoðar ekki eins og Mogginn.
RioTinto, Alcan og Alcoa drulla yfir íslenska náttúru á hverjum degi og við niðurgreiðum orkuna til þeirra, þökk sé Friðriki Sófussyni og klíkunni í SjálfstæðisFLokknum og Framsóknarflokknum og því miður stærsta hlutanum úr Samfylkingunni.
Svona aðgerðir skaða engan en vekja athygli á málstaðnum og fara í taugarnar á umhverfissóðunum.
![]() |
Aðgerðarsinnar fóru upp í vinnupalla við Hallgrímskirkju. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.8.2009 | 00:00
Reka skilanefnd Kaupþings strax
Þessar skilanefndir bankanna eru skipaðar gæðingum SjálfstæðisFLokksins og eru að vinna í því að sópa skítnum undir teppið. Af hverju er ekki búið að reka þetta lögfræðingastóð fyrir löngu? Það á að afnema bankaleyndina strax. Hagsmuni hverra er verið að verja? Hvað er verið að fela? Hversu djúpt er búið að sökkva þessu landi? Og Bjarni Ben hellir olíu á eldinn.
![]() |
Kaupþing fékk lögbann á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?