Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.2.2007 | 10:16
Afdráttarlaus yfirlýsing
Það er gott að Steingrímur J. Sigfússon tekur af allan vafa um samstarf við aðra flokka. Steingrímur fullyrðir ekkert um Frjálslyndaflokkinn en segir einfaldlega: "...að ef svo dapurlega eigi eftir að fara í íslenskum stjórnmálum að þar gangi fram flokkur sem beinlínis geri út á andúð í garð fólks af erlendum uppruna og daðri við kynþáttaaðgreiningarhyggju þá sé samstarf fyrirfram útilokað við slíka flokka."
Þetta eru skýr skilaboð og vonandi þarf ekki til þess að koma því vonandi sjá Frjálslyndir ljósið í þessum málum. Annars eru niðurstöður könnunar Gallup á fylgi flokkanna athyglisverðar. Frjálslyndir lækka miðað við síðustu könnun og Samfylking og Sjalfstæðisflokkur einnig en Vinstri græn halda áfram að bæta við sig. Nú þarf Samfó bara að spýta í lófana og höfða til miðjufólksins sem segist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
![]() |
Steingrímur: Fyrirfram útilokað samstarf við flokka sem gera út á andúð í garð útlendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2007 | 16:28
Of mikil mengun
Það eru alltaf að berast fréttir af alltof mikilli mengun í þessu "hreina" landi okkar og reyndar í heiminum öllum. Það þarf að rukka þá sem menga þá fara menn að hugsa sinn gang. Þess vegna er tilvalið að hækka verð á nagladekkjum en lækka verð á loftbóludekkjum og grófkornadekkjum. Það er ekkert mál að aka á ónegldum dekkjum jafnvel hér á Akureyri. Maður þarf ekki alltaf að vera á hámarkshraða og ef það er svell þá fer maður bara varlega.
Svo mun svifryksmengum þrefaldast ef álverið í Hafnarfirði verður stækkað. Þetta er náttúrulega rugl og auðvitað hljóta Hafnfirðingar að hafna þessari stækkun.
Gott að sjá að Kristín Sigfúsdóttir er í þessum starfshópi enda veit hún um hvað málið snýst. Líka gott að Jónína Bjartmars umhvefisráðherra hvetur til að strætó verði gerður ókeypis víðar en á Akureyri og í Reykjanesbæ. Þetta hefur líka tekist vel, strax 60% aukning farþega í strætó á Akureyri. Það græða allir á þessu og vonandi dregur úr bílaumferð. Nú þarf bara að bæta almenningssamgöngurnar, fleiri leiðir og tíðari ferðir.
![]() |
Vilja lækka gjöld á ónegldum hjólbörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2007 | 15:19
Framkvæmdir stöðvaðar
Gott að fólki tókst að stöðva þessar framkvæmdir í Mosfellsdalnum. Mótmæli hafa sem betur fer áhrif. Það hlýtur að vera hægt að fara aðra leið með þennan veg. Ég treysti á Vinstri græn í Mosfellsbæ til að tala um fyrir Sjálfstæðisflokknum og endurskoða þessa staðsetningu. Hildur Margrétardóttir, Varmársamtökin og Sigurrós og allir sem mættu til að mótmæla eiga heiður skilinn.
![]() |
Framkvæmdir stöðvaðar við Álafosskvos |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.1.2007 | 17:08
Ungt fólk fái að kjósa
Það er fyrir löngu kominn tími til að auka réttindi og áhrif ungs fólks í samfélaginu. Einn þáttur í því er að allir 16 ára og eldri fái að kjósa sér fulltrúa í sveitarstjórnir og á Alþingi, það er aukið lýðræði. Með þessu yrði ábyrgð ungs fólks aukin og því gert kleift að taka þátt í mótun samfélagsins eins og það á réttmæta kröfu á.
Árið 1984 var almennur kosningaaldur á Íslandi lækkaður úr 20 árum í 18 ár. Nú er tími til að auka enn þátttöku ungs fólks í lýðræðinu og færa kosningaaldur í 16 ár. 16 ára einstaklingur í íslensku samfélagi er orðinn virkur þátttakandi í þjóðfélaginu, hefur lokið grunnskóla og ætti að vera tilbúinn til að taka á sig á þá ábyrgð sem felst í því að kjósa sér fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnir. Það ætti einnig að vera sjálfsagður réttur þessa unga fólks.
Frumkvæði í lýðræði
Í nágrannalöndum okkur er verið að kanna þessi mál og það væri óskandi að Íslendingar tækju frumkvæði í því að auka lýðræði og þátttöku ungs fólks í þjóðfélaginu. Kosningaréttur allra eldri en 16 ára er í athugun í Bretlandi og hefur Græniflokkurinn í Englandi og Wales sett þessa kröfu í stefnuskrá sína og það sama hafa Frjálslyndir demókratar í Bretlandi og Þjóðarflokkurinn í Skotlandi gert. Í Finnlandi hefur Miðjuflokkurinn lagt til að tilraun verði gerð á einstökum svæðum í næstu sveitastjórnarkosningum, sem verða 2008, þar sem 16 ára Finnar fengju að kjósa. Í Svíþjóð hefur Umhverfisflokkurinn haft það á stefnuskrá sinni að lækka kosningaaldur niður í 16 ár til þess að freista þess að auka þátttöku ungmenna í pólitískri umræðu. Í Noregi hefur Frjálslyndiflokkurinn sett þetta mál í stefnuskrá sína og það sama má segja um flokka á hollenska þinginu, í Kanada, Ástralíu og í Austurríki svo nokkur lönd séu nefnd.
Nú þegar hafa 16 ára ungmenni kosningarétt í löndum eins og í Brasilíu, Níkaragúa og á Kúbu. Í Króatíu, Serbíu og Svartfjallalandi hafa ungmenni á vinnumarkaði og eru orðin 16 ára einnig kosningarétt.
Norski félagsfræðingurinn Stein Ringen hefur fjallað um þátttöku ungs fólks og barna í lýðræðinu (Citizens, Families and Reform, Clarendon Press, Oxford 1997) og Torfi H. Tulinius prófessor við Háskóla Íslands hefur einnig fjallað um málið á áhugaverðann hátt.
Rök með og á móti
Helstu rökin fyrir því að 16 ára einstaklingar hljóti kosningarétt eru þau að það muni smám saman leiða til breyttra áherslna í landsmálunum þar sem kjörnir fulltrúar landsins myndu leitast við að verja hagsmuni stærri hluta þjóðarinnar. Kosningaréttur hefði þroskandi áhrif á ungt fólk og það yrði að ábyrgum þátttakendum í samfélaginu.
Rök gegn því að ungt fólk fái kosningarétt eru til dæmis þau að börn og unglingar búi ekki yfir vitsmunaþroska til að taka afstöðu í þjóðmálum eða sveitastjórnarmálum, að þau láti tilfinningar ráða fremur en dómgreindina og séu líklegri til að verða fórnarlömb áróðursmeistara. Öll þessi rök lýsa vantrausti á ungt fólk og hafa reyndar einnig verið notuð á liðnum tímum til að koma í veg fyrir að konur, eignalausir, undirokaðir kynþættir og jafnvel almenningur hljóti kosningarétt!
Krafa okkar í upphafi 21. aldarinnar hlýtur að vera sú að allir 16 ára og eldri fái kosningarétt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2007 | 00:41
Bannlisti Bandaríkjastjórnar
BNA er alltaf að færa sig uppa skaftið. Nú hafa stjórnvöld þar á bæ bannað útflutning á ýmsum munaðarvörum, eins og t.d. iPod-spilurum, eðalvínum, koníaki, vatnaskíðum, skartgripum, tískufötum og sportbílum, til Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna stjórnvalda landsins á liðnu ári. Ég veit ekki alveg hvað iPod er að gera þarna enda ekki sérstök munaðarvara síðast þegar ég vissi. Vatnaskíði eru einnig skemmtileg en hvað með snjóbretti. Ekki viljum við að Kim Jong Il og félagar séu að leika sér á svoleiðis þó að þeir geti ekki hlustað á iPod um leið. Mér finnst líklegt að valdamenn í N-Kóreu hendi sér nú að samningaborðinu og semji af sér í örvæntingu yfir því að fá engin bandarísk vatnaskíði og tískuföt.
![]() |
Viðskiptabann á norður-kóreska valdastétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.1.2007 | 17:56
Erfið staða Frjálslyndra
Magnús Þór rétt mer sigur á Margréti Sverrisdóttur eftir gríðarlega smölun fram á síðustu stundu í flokkinn. Nú er komin upp erfið staða hjá Frjálslyndum og flokkurinn gæti allt eins klofnað. Eins og sendingarnar gengu á milli félaga í Frjálslyndum síðustu daga er erfitt að sjá að hægt sé að sætta ólík sjónarmið og samt aðalega persónur. Það yrði mikið áfall fyrir flokkinn ef Margrét og hennar fólk hætti og færi jafnvel annað. En það skýrist sennilega eftir helgina.
![]() |
Magnús Þór kjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2007 | 12:14
Lækkum kosningaaldurinn í 16 ár
Af því að málið er mér skylt þá bendi éf fólki bara á að lesa tillöguna hér.
Hér eru svo helstu rök með og á móti í málinu:
Helstu rökin fyrir því að 16 ára einstaklingar hljóti kosningarétt eru þau að það muni smám saman leiða til breyttra áherslna í landsmálunum þar sem kjörnir fulltrúar landsins myndu leitast við að verja hagsmuni stærri hluta þjóðarinnar. Kosningaréttur hefði þroskandi áhrif á ungt fólk og það yrði að ábyrgum þátttakendum í samfélaginu.Rök gegn því að ungt fólk fái kosningarétt eru til dæmis þau að börn og unglingar búi ekki yfir vitsmunaþroska til að taka afstöðu í þjóðmálum eða sveitastjórnarmálum, að þau láti tilfinningar ráða fremur en dómgreindina og séu líklegri til að verða fórnarlömb áróðursmeistara. Öll þessi rök lýsa vantrausti á ungt fólk og hafa reyndar einnig verið notuð á liðnum tímum til að koma í veg fyrir að konur, eignalausir, undirokaðir kynþættir og jafnvel almenningur hljóti kosningarétt!
Krafa okkar í upphafi 21. aldarinnar hlýtur að vera sú að allir 16 ára og eldri fá kosningarétt.
![]() |
Vilja lækka kosningaaldurinn í 16 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2007 | 15:17
Björn Bjarna veit ekki svarið!
Það var kostulegt að hlusta á útúrsnúninga Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við spurningu Steingríms Sigfússonar í fyrirspurnatíma á Alþingi áðan.
Steingrímur lagði fram fyrirspurn um umfang og eðli og tímasetningar á öryggis- eða leyniþjónustustarfsemi hjá lögreglu og fleiri aðilum á Íslandi.
Björn Bjarnason sagði að hann geti ekki svarað einhverju til sem hann veit ekki. Það hvarflaði hinsvegar ekki að honum að leita svara við spurningunni hjá einhverjum sem veit eitthvað um málið úr því að Björn sjálfur vill ekkert kannast við það. Svo segir á mbl.is:
"Steingrímur sagðist gera kröfu um að dómsmálaráðherra útvegi þessar upplýsingar enda ef þær séu til þá er þær að finna í stofnunum á vegum ráðuneytisins, að sögn Steingríms. Segir hann að ráðherrar eigi að afla þeirra upplýsinga sem þeir eru beðnir um í fyrirspurnartíma á Alþingi. Sagðist Steingrímur mótmæla því stjórnarskrárvarinn réttur hans sem alþingismanns sé lítilsvirtur með þessum hætti.
Svaraði Björn því til að stjórnarskráin krefðist þess ekki af mönnum að þeir svari spurningum sem þeir viti ekki svarið við."
Nú er það spurningin: Veit Björn ekki svarið eða vill hann ekki svara?
![]() |
Steingrímur krefur ráðherra svara um starfsemi öryggisþjónustu á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2007 | 11:54
Kosið um stækkun Alcan 31. mars
Þá er það loksins komið á hreint. Hafnfirðingar fá að kjósa um risastækkun álvers Alcan í Straumsvík þann 31. mars 2007. Þetta eru góðar fréttir og ég er viss um að Hafnfirðingar hafna þessari stækkun. Það er einnig ánægjulegt að bæjarstjórn heimili bæjarráði að styrkja samtök, sem leita eftir fjárhagslegum stuðningi vegna kynningar á sjónarmiðum og viðhorfum í tengslum við kosningarnar. Samtökin Sól í Straumi hafa ekki yfir neinu viðlíka fjármagni að ráða og álrisinn Alcan sem með áróðri sínum ætlar að kaupa Hafnfirðinga til liðs við sig. Því getur fólk hafnað í kjörklefanum!
![]() |
Íbúakosning í Hafnarfirði 31. mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2007 | 01:09
Samstaða um Ríkisútvarpið
Af gefnu tilefni er rétt að birta hér sameiginlega yfirlýsingu stjórnarandstöðuflokkana um Ríkisútvarpið. Við viljum öflugt almannaútvarp en ekki ohf.
Sameiginleg yfirlýsing Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Frjálslynda flokksins um Ríkisútvarpið 22. janúar 2007
Samstaða um Ríkisútvarpið traust og sjálfstætt almannaútvarp
Stjórnarandstöðuflokkarnir á alþingi, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin-grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn, hafa lagt áherslu á það í umræðum um RÚV-frumvarpið að ná þurfi víðtækri sátt í samfélaginu um þær framtíðarbreytingar sem gerðar verði. Stjórnarandstaðan vill með því tryggja að hér verði ríkisútvarp ekki ríkisstjórnarútvarp.
Ríkisstjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafa kosið að afgreiða frumvarp um Ríkisútvarpið í miklum ágreiningi við stjórnarandstöðuna. Forystumenn þessara flokka hafa hafnað öllum sáttaboðum.
Ríkisstjórnin hefur með þessu kosið að setja pólitíska hagsmuni sína ofar velferð Ríkisútvarpsins og ljóst er að nýrrar ríkisstjórnar bíður það verkefni að taka málefni Ríkisútvarpsins til endurskoðunar með það í huga að skapa um þau sátt til frambúðar. Samfylkingin, Vinstrihreyfingin-grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn eru sammála um þessi markmið við slíka endurskoðun:
* Ríkisútvarpið verður ekki hlutafélag, en fundnar leiðir til aukinnar skilvirkni og svigrúms í rekstri með nýjum lagaramma sem tryggir sjálfstæði og fagleg viðhorf við dagskrárákvarðanir og ráðningarmál.
* Ríkisútvarpið verður almannaútvarp, með skýrt afmarkað hlutverk og vel skilgreindar starfsreglur. Ríkisútvarpið tryggir fjölbreytni í ljósvakafjölmiðlun á Íslandi. Það annast vandaðan fréttaflutning, framleiðslu og miðlun menningarefnis af margvíslegu tagi, er vettvangur lýðræðislegrar umræðu og hefur víðtækt fræðsluhlutverk. Í sjónvarpi er innlent efni í öndvegi með þátttöku íslenskra framleiðenda. áhersla er lögð á efni fyrir börn og unglinga í öllu starfi Ríkisútvarpsins.
* Stjórn Ríkisútvarpsins verður rekstrarstjórn. Hún verður þannig skipuð að sem breiðust samstaða myndist en störf hennar mótist ekki af ríkisstjórnarmeirihluta hverju sinni. Dagskrárákvarðanir allar eru í höndum starfsmanna. Akademía eða hlustendaþing er með í ráðum við meiriháttar rekstrarákvarðanir og mótun dagskrárstefnu til langs tíma.
* Ríkisútvarpið verður sjálfstætt, óháð stjórnmála- og viðskiptahagsmunum. Starfsmenn þess eiga að búa við ritstjórnarlegt sjálfstæði sem m.a. tryggir faglega umfjöllun um menn og málefni á vettvangi stjórnmála og atvinnulífs. Skýr aðgreining verður mörkuð í dagskrá Ríkisútvarpsins milli dagskrárgerðar og auglýsinga, og settar verða reglur um kostun sem taka mið af þessu.
* Ríkisútvarpið verður fjármagnað annars vegar með ríkisframlagi og sérstökum tekjum en hins vegar með auglýsingatekjum. Tryggt verður að auglýsingatekjur hafa ekki áhrif á dagskrárframboð Ríkisútvarpsins og rýra ekki um of svigrúm annarra ljósvakamiðla á þeim markaði.
* Málefni starfsmanna hjá Ríkisútvarpinu fylgja meginreglum og hefðum á opinberum vinnumarkaði og eru gædd þeim sveigjanleik sem fjölmiðill þarf á að halda. Við mótun nýs lagaramma verður farið yfir réttindi og skyldur starfsmanna ásamt starfsmönnum og samtökum þeirra með þetta markmið í huga.
![]() |
Umfjöllun um RÚV-frumvarp lauk skyndilega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?