Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Vefurinn

Ekki skerđa almannaţjónustuna

20070208161442169811

Niđurstöđurnar úr könnun Háskóla Íslands blása í mann baráttuhug og enn og aftur sýnir fólkiđ í landinu okkur ađ ráđamenn ţessarar ţjóđar eru á villigötum. Viđ viljum ekki skerta almannaţjónustu og fólk er búiđ ađ fá nóg af ţessari einkavćđingu og komugjöldum og öllu bullinu. Ţessar niđurstöđur stinga uppí frjálshyggjuplebbana sem er alveg sama um velferđarkerfiđ en vilja bara skattalćkkanir fyrir hina ríku. Viđ viljum greiđa sanngjarnan skatt fyrir öfluga almannaţjónustu sem nýtist fólki. Ekki skerđa almannaţjónustuna. Svona er fréttin af ruv.is:

"Skattalćkkun skerđi ekki ţjónustu

Ríflega 70% landsmanna vilja ekki skattalćkkanir verđi ţađ til ţess ađ draga úr opinberri ţjónustu. Ţetta kemur fram í nýrri rannsókn sem frćđimenn viđ Háskóla Íslands vinna ađ. Ţá hefur aldrei veriđ meiri munur á kosningahegđun kynjanna en í alţingiskosningunum í vor.

Frćđimenn viđ Háskóla Íslands vinna nú ađ íslensku kosningarannsókninni en ţađ er spurningakönnunum sem lögđ var fyrir kjósendur eftir alţingiskosningarnar í vor. Einar Mar Ţórđarson stjórnmálafrćđingur greindi frá ţví í ţćttinum Í vikulokin á Rás eitt í dag ađ aldrei hefđi veriđ meiri munur á kosningahegđun karla og kvenna en í vor."

20070208161443046882

Viđ Vinstri grćn gengum međfram Ţjórsá og komumst enn og aftur ađ ţví ađ ţađ verđur ađ stoppa Landsvirkjun í hernađinum gegn landinu og fólkinu sem býr í nágrenni ţeirra stađa sem ţeir ásćlast. Grćđgin í forsvarsmönnum Landvirkjunar er óhugnanleg og hana verđur ađ stöđva. Mađur dáist ađ fólkinu í sveitinni sem síđustu ár af veikum mćtti en ótrúlegum dugnađi hefur barist fyrir landiđ og gegn ásókn Landsvirkjunar međ alla peningamaskínuna á bak viđ sig. Viđ verđum ađ styđja ţetta fólk og koma í veg fyrir frekari slys. Viđ verđum ađ bjarga Ţjórsá! Hér eru tvćr myndir frá Landsvirkjun af fyrirhuguđum lónum ţeirra sem munu fćra á kaf gróiđ land og fallega hólma. Ég bendi einnig á vefinn Ţjórsá.com ég dáist ađ ţessu fólki sem á viđ ofurefli ađ etja en gefst ekki upp. Takk fyrir ađ sýna okkur ţetta frábćra land og fyrir ađ standa vörđ um verndun ţess. 


mbl.is Vilja ekki skattalćkkanir ef ţađ skerđir ţjónustu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Stefán Jónsson opnar sýninguna "Skuggar og svipir" á Café Karólínu laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14

stefan.JPG
Stefán Jónsson

Skuggar og svipir

01.09.07-05.10.07   


Velkomin á opnun laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14

Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstrćti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755

Laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14 opnar Stefán Jónsson sýninguna "Skuggar og svipir" á Café Karólínu.

Sýningin heitir Skuggar og svipir. 24 svart hvítar ljósmyndir 20 x 20 cm hver og 6 ljósmyndir í lit 33 x 45 cm hver. Myndefniđ er í öllum tilfellum höfundurinn sjálfur.

Stefán Jónsson er fćddur á Akureyri 1964 og stundađi myndlistarnám í Myndlista- og handíđaskóla Íslands og í School of Visual Arts í New York. Hann hefur sett upp fjölda sýninga víđsvegar um heim, nú síđast í Safni í Reykjavík og í Jónas Viđar gallery á Akureyri.

Nánari upplýsingar veitir Stefán í netfangi melman(hjá)simnet.is og í síma 8645448

Međfylgjandi mynd er af einu verka Stefáns sem hann sýnir á Café Karólínu.

Stefán verđur viđstaddur opnunina. Sýningin á Café Karólínu stendur til 5. október, 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 1. september, klukkan 14.

Á sama tíma stendur yfir sýning Brynhildar Kristinsdóttur á Karólínu Restaurant.

Til föstudagsins 31. ágúst er enn tćkifćri til ađ sjá sýningu Dagrúnar Matthíasdóttur "Súpur" á Café Karólínu.

Nćstu sýningar á Café Karólínu:

06.10.07-02.11.07        Marsibil G. Kristjánsdóttir
03.11.07-30.11.07        Birgir Sigurđsson
01.12.07-04.01.08        Steinunn Helga Sigurđardóttir
05.01.08-02.02.08        Guđrún Vaka
03.02.08-02.03.08        Steinn Kristjánsson
03.03.08-04.04.08        Unnur Óttarsdóttir
05.04.08-02.05.08        Guđmundur R Lúđvíksson
03.05.08-06.06.08        Kjartan Sigtryggsson

Umsjónarmađur sýninganna er Hlynur Hallsson


Jónas Hallgrímsson 200 ára


Í tilefni af 200 ára fćđingarafmćli Jónasar Hallgrímssonar verđur opnuđ samsýning 21 myndlistarmanns í Ketilhúsinu í Listagilinu á Akureyri laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00. Ber hún yfirskriftina "Skyldi' ég vera ţetta sjálfur".
Jónas er kveikjan ađ öllum verkum sýningarinnar og verđur fjölbreytt flóra myndlistarmanna sem eiga viđ hann samtal.
Sýningarstjóri er Ţórarinn Blöndal.   
Sýninginn mun standa  framyfir afhendingu Sjónlistarverđlaunanna 2007 sem fram fer á Akureyri 21. til 23. september.
Sýningin verđur opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 og 17.00
    
Eftirtaldir listamenn munu taka ţátt í sýningunni:

Ađalheiđur S. Eysteinsdóttir
Arna Valsdóttir
Áslaug Thorlacius
Birgir Snćbjörn Birgisson
Finnur Arnar
Hanna Hlíf Bjarnadóttir
Helgi Ţórsson
Hlynur Hallsson
Hulda Hákonardóttir
Ilmur Stefánsdóttir
Jón Garđar Henrysson
Jón Laxdal
Jón Sćmundur Auđarson
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Jónas Viđar
Joris Rademaker
Megas
Margrét Blöndal
Pálína Guđmundsdóttir
Ragnar Kjartansson
Ţorvaldur Ţorsteinsson

Menningarmiđstöđin Listagili
Akureyri Cultural Center
Sími/Tel: 466 2609
listagil@listagil.is
www.akureyri.is
http://listasumar.blog.is


Vonandi verđa Kanadamenn vingjarnlegir


Ég er mjög hrifinn af vináttuleikjum og er viss um ađ Kanadamenn fari ekki illa međ okkur. Ţó ađ íslenska karlalandsliđiđ í fótbolta sé í sćti númer hundrađ og eitthvađ međ Súdan og hafi aldrei veriđ neđar. Ţetta er jú vináttuleikur. Hallur Gunnarsson frćndi minn og Andrea Hjálmsdóttir voru ađ flytja til Kanada ásamt Fönn og Dögun og ţau eru međ ansi flott lén nefnilega kanada.is. Ţau eru dugnađarforkar og strax farin ađ mótmćla stríđsbrölti í Vancouver sé ég á síđunni ţeirra. Ég spái ţví ađ leikurinn fari eitt - eitt.


mbl.is Stolt og barátta eru ađalatriđin gegn Kanada
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Frábćr umfjöllun um Ísland í GeoSaison

70050934_max

Flott hestamynd á forsíđunni á GeoSaison og skemmtilegt ađ athyglinni skuli beint ađ Vestfjörđunum sem hingađ til hafa ekki veriđ hluti af ađal ferđamannaleiđinni. En vonandi er ţađ ađ breytast og ţjóđverjar munu flykkjast til Vestfjarđa eftir ţessa ítarlegu umfjöllun í GeoSaison. Ósnortin náttúra Vestfjarđa á eftir ađ margfaldast í verđmćti í framtíđinni og vonandi verđur ekki allt eyđilagt međ risaolíuhreinsistöđ. Hér er er fréttin af mbl.is:

Mikil umfjöllun er um Ísland í ágústhefti ţýska ferđatímaritsins GeoSaison. Auk ţess ađ prýđa forsíđu blađsins ţekur umfjöllunin alls 30 blađsíđur í tímaritinu og er ljósmyndum af íslenskri náttúru gert hátt undir höfđi.

Arthúr Björgvin Bollason, sem sér um kynningarmál fyrir Icelandair í Miđ-Evrópu, segir ađ ţótt greinar um Ísland séu algengar í ferđatímaritum sé mjög óvenjulegt ađ sjá svona stóra og ítarlega umfjöllun um landiđ eins og birt er í GeoSaison. "Viđ erum mjög ánćgđ međ ţetta. "Ţetta er mjög öflugur miđill," segir hann.

GeoSaison er vel ţekkt tímarit um ferđamál og selst í á annađ hundrađ ţúsunda eintökum. Leikur enginn vafi á ađ umfjöllunin mun vekja mikla athygli, skv. upplýsingum Arthúrs Björgvins. "Ţađ er óhćtt ađ segja ađ Geosaison sé öflugasta tímaritiđ á ţessu sviđi. Ţađ hafa stöku sinnum komiđ greinar um Ísland á undanförnum árum en aldrei neitt í líkingu viđ ţetta."

Sérhćft miđlunarfyrirtćki sem leggur verđmat á auglýsingagildi greina af ţessu tagi hefur metiđ umfjöllunina um Ísland í GeoSaison á um 450 ţúsund evrur eđa sem svarar til rúmlega 40 milljóna íslenskra króna."


mbl.is Ţrjátíu blađsíđna umfjöllun um Ísland birt í víđlesnu ţýsku ferđatímariti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fljúgandi morđtól - mótmćlum ţeim í dag

Í dag klukkan 17 efna samtök hernađarandstćđinga til mótmćla gegn ţessum gagnslausu og kostnađarsömu herćfingum sem nú standa yfir. Allir heimsins herir munu aldrei geta komiđ í veg fyrir hryđjuverk en ţetta hernađarbrölt stuđlar hinsvegar ađ hryđjuverkum. Ég hvet alla til ađ taka ţátt í mótmćlunum í dag sem má lesa meira um á friđarvefnum og hér er tilkynning um mótmćlin í dag:

Safnast verđur saman viđ norska sendiráđiđ (viđ Fjólugötu), ţriđjudaginn 14. ágúst kl. 17. Ţađan verđur gengiđ ađ sendiráđum Bandaríkjanna, Danmerkur og loks numiđ stađar viđ Stjórnarráđiđ og húsráđendum á hverjum stađ tjáđ andstađa íslenskra friđarsinna. Hernađarandstćđingar eru hvattir til ađ mćta og mótmćla herćfingunum.

Ćfingar af ţessum toga eru ekki ađeins ađferđ herveldanna til ađ ţjálfa herliđ sitt heldur einnig til ađ stađfesta áhrifasvćđi sitt og berast á gagnvart raunverulegum og ímynduđum andstćđingum. Ţeim fylgir mengun, ónćđi og hćtta. Ţćr eru skađlegar hagsmunum Íslands og íslensku ţjóđarinnar.

Sami Bandaríkjaher og er blóđugur upp fyrir axlir í Írak ţjálfar hermenn sína á Íslandi.

Sömu NATO-herir og ćfa sig í lofthernađi yfir Íslandi bera ábyrgđ á stórfelldu mannfalli međal óbreyttra borgara í Afganistan – ekki sist međ lofthernađi.

NATO á ađ heita varnarbandalag en hefur aldrei háđ varnarstríđ. Ţvert á móti verđur ekki betur séđ en ađ ţađ sérhćfi sig í árásarstríđum.

Milljónatugum af íslensku almannafé er variđ til ađ borga undir erlenda heri á Íslandi.

Síđustu ár hafa íslensk stjórnvöld stigiđ ć fleiri skref í átt til aukinna hernađarafskipta á vegum Íslands. Nú ţegar ekki er lengur fastaher á Íslandi róa ráđamenn ađ ţví öllum árum ađ hér séu sem tíđastar og mestar herćfingar.

Utanríkisráđherra segir ađ Ísland sé herlaust land. Samt samţykkir hún ađ hér komi orrustuţotur fjórum sinnum á ári. Hún segir ađ Ísland sé utan stórra valdablokka. Samt samţykkir hún veru Íslands í NATO.

ÍSLAND ÚR NATÓ - ENGAN HER!


mbl.is Loftvarnir og ađgerđir gegn hryđjuverkum ćfđar á Norđurvíkingnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Aldrei aftur Hírósíma , aldrei aftur Nagasakí

thumb_kertafleyting1Ég hvet alla til ađ fjölmenna í kvöld klukkan 22:30 viđ Tjörnina í Reykjavík og hér á Akureyri viđ tjörnina viđ Minjasafnsafniđ og minnast fórnarlamba kjarnorkusprengja bandaríkjamanna. Á friđarvefnum er nánar sagt frá ţessum árlega viđburđi.

mbl.is Kjarnorkuárásarinnar á Nagasaki minnst
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Dagrún Matthíasdóttir opnar sýninguna "Súpur" á Café Karólínu laugardaginn 4. ágúst, 2007, klukkan 14

dagrún

Dagrún Matthíasdóttir

Súpur

04.08.07-31.08.07 
  

Velkomin á opnun laugardaginn 4. ágúst 2007, klukkan 14


Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstrćti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Laugardaginn 4. ágúst  klukkan 14 opnar Dagrún Matthíasdóttir sýninguna "Súpur" á Café Karólínu.

Á sýningunni verđa málverk og myndband. Dagrún segir um sýninguna: ,"Mín fyrstu kynni af kaffi Karólínu voru súpurnar góđu í hádeginu fyrsta áriđ mitt í Myndlistaskólanum. Minningin um súpu sem ađalmáltíđ dagsins varđ til ţess ađ ég ákvađ ađ mála súpur í tilefni minnar fyrstu sýningu á Café Karólínu."

Dagrún er ísfirđingur og er búsett á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskólanum í Breiđholti af myndlista og handíđabraut og útskrifuđ frá Myndlistaskólanum á Akureyri voriđ 2006. Í dag stundar hún nám í nútímafrćđi viđ Háskólann á Akureyri.

Nánari upplýsingar veitir Dagrún í netfangi dagrunm(hjá)snerpa.is

Međfylgjandi mynd er af einu verka Dagrúnar sem hún sýnir á Café Karólínu.

Dagrún verđur viđstödd opnunina. Sýningin á Café Karólínu stendur til 31. ágúst 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 4. ágúst 2007, klukkan 14.

Á sama tíma opnar Brynhildur Kristinsdóttir sýningu á Karólínu Restaurant, fréttatilkynningu um ţá sýningu verđur birt morgun.

Nćstu sýningar á Café Karólínu:

01.09.07-05.10.07        Stefán Jónsson
06.10.07-02.11.07        Marsibil G. Kristjánsdóttir
03.11.07-30.11.07        Birgir Sigurđsson
01.12.07-04.01.08        Steinunn Helga Sigurđardóttir
05.01.08-02.02.08        Guđrún Vaka


Tvinbíll frá Toyota og gasbílar frá Fiat minnst skađlegir umhverfinu

toyota_1.531446Ţađ er ef til vill einkennilegt ađ ađ tala um "grćna bíla" eđa "umhverfisvćna bíla" en gott hjá Svisslendingum og mbl.is ađ benda á lista yfir ţá bíla sem hafa minnst umhverfisáhrif í akstri. 6000 bílar eru teknir fyrir og niđurstađan er sú ađ tvinnbíllinn (gengur fyrir bensíni og rafmagni) Toyota Prius er sá minnst skađlegi umhverfinu. Fast á hćla honum koma bílar sem knúnir eru gasi frá Fiat, Fiat Panda og Fiat Punto. Skásti díselbíllinn er VW Polo en hann lendir í 12. sćti. Á svarta listanum eru svo bílar sem íslendingar kannast vel viđ: Nissan Patrol, Ford Transit og fleiri díselhákar. Nú geta ţeir sem neyđast til ađ aka um á bíl allavega valiđ skárri bíla en ţassa jeppa sem ekkert gera annađ en ađ taka of mikđ pláss og menga allt of mikiđ. Góđ auglýsing fyrir Toyota Prius og ćtti ađ vera öđrum bílaframleiđendum hvatnig til ađ gera enn betur.

Greinin í Neue Züricher Zeitung 

Hér er svo tengill í töflu yfir skástu bílana og ţá verstu.


mbl.is Prius grćnasti bíllinn á lista Svisslendinga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Rúmlega 17 ţúsund Akureyringar

Akureyringur17000

Ţađ er afar ánćgjulegt ađ Akureyringar skuli loksins vera orđnir 17.000. Ég var síđast í gćr ađ segja nokkrum ţjóđverjum frá ţví ađ ţađ byggju 16 ţúsund manns á Akureyri en samt vćri ţar háskóli, listasafn og myndlistarskóli en fćrri veitingastađir og viđ litla torgiđ hér í Austurhluta Berlínar sem viđ sátum á. Nú er semsagt hćgt ađ uppfćra ţessar upplýsingar. En hvađ eru Íslendingar orđnir margir? Ég segi venjulega bara rúmlega 300.000. Ţegar ég var ađ vinna í íslenska skálanum á EXPO 2000 í Hannover sagđi mađur alltaf 280.000 sem var ekki fjarri lagi en nú erum viđ sennilega orđin 215.000 eđa hvađ? Til hamingju Gabríel Óskar Dziubinski og til hamningu Ivona Dziubinska eđ litla bróđur og til hamingju Krzysztof Dziubinski og Beatu Mieczyslawa Dziubinska međ drenginn fína.

ak.gabrielSvo er bara ađ vona ađ Akureyri verđi barnvćnni bćr í framtíđinni og ađ Gabríel geti valiđ úr frábćrum leikvöllum til ađ leika á en ţar stenst Akureyri ţví miđur engan samanburđ. Og ţegar hann og stóra systir fara ađ hjóla ađ ţá verđi komnir hjólastígar viđ allar götur og milli hverfa og ađ ţađ verđi ekki hćttulegt ađ hjóla eins og nú er. Flott hjá Sigrúnu Björk bćjarstjóra ađ afhenda fjölskyldunni glćsilegan blómvönd og bókina „Barniđ okkar“. Ţađ er gott ađ koma aftur til bćjar ţar sem fjölbreitt og gott fólk býr og gleđilegt ađ viđ séum orđin rúmlega 17 ţúsund.

Hér eru umfjallanir stađarmiđlanna um 17.000 Akureyringinn:

Akureyri.net

Vikudagur.is 

N4.is 

Dagur.net

Akureyri.is 


mbl.is Akureyringar orđnir ríflega 17.000
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síđur

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.