Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Sarkozy í braski?

SarkozyFrambjóðendur fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi eiga ekki sjö daga sæla um þessar mundir, allt grafið upp! Nú hefur franskt dagblað, Le Canard Enchaine, birti frétt um að Sarkozy hafi fengið verulegan afslátt á íbúð sem hann keypti fyrir tíu árum síðan. Spurning mín er hinsvegar hver var það sem veitti honum afsláttinn og af hverju? Það er rúmur mánuður síðan Segolene Royal rak aðstoðarmann sinn fyrir að segja vandræðalegan brandara um hana og sambýlismann hennar. Ekki beint stórmálin sem vekja athygli í þessum slag í Frakklandi. Vonandi verða málin ekki þannig fyrir Alþingiskosningarnar hér þó að sumir hafi gert sitt besta til að snúa út úr ummælum Steingríms J. Sigfússonar um "netlögreglu" hér á blogginu og víðar. Steingrímur skrifar fína grein um málið í Moggann í dag sem gott er fyrir alla að lesa.
mbl.is Húsnæðismál Sarkozy í sviðsljósinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn er stóriðjuflokkurinn

könnun.fbl.álver

Það er athyglivert að samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru kjósendur sem hafna stækkun álvers Alcan í Straumsvík í meirihluta innan allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins. Meira að segja meirihluti kjósenda Framsóknarflokksins vill ekki þessa stækkun. Það er hinn fölgræni fálki Sjálfstæðisflokksins sem einn allra flokka vill þessa vanhugsuðu stækkun. Það eru ný tíðindi. Umhverfismálin eiga ekki upp á pallborðið hjá 70% kjósenda d-listans. Hér er öll fréttin:

"Meirihluti andvígur stækkun í Straumsvík

Rúm 63 prósent segjast andvíg stækkun álversins í Straumsvík. Konur eru líklegri til að vera andvígar stækkun en karlar. Einungis meirihluti stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins er fylgjandi stækkun.
graenifalki
Meirihluti landsmanna er andvígur stækkun álversins í Straumsvík, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 63,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar segist andvígt, en 35,9 prósent eru stækkun fylgjandi.
Ef litið er til þess hver afstaða fólks er til álversins eftir því hvaða flokk það myndi kjósa, væri gengið til kosninga nú, kemur fram nokkur munur.
Stuðningsfólk Vinstri grænna er flest mótfallið stækkun álversins og segjast 93,3 prósent þeirra vera andvíg stækkun. Þá eru þrír fjórðu, eða 75,6 prósent stuðningsfólks Samfylkingarinnar, andvíg stækkun álversins í Straumsvík.
Meirihluti stuðningsfólks Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins er einnig andvígur stækkun, en meðal þeirra er meirihlutinn naumari; 55,0 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Frjálslynda flokkinn og 53,8 prósent þeirra sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn.
Það er einungis meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins sem finnst meirihlutastuðningur við stækkun álversins í Straumsvík. 70,5 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn segjast styðja stækkunina.

straumur
Ef litið er til þeirra sem ekki gefa upp hvaða flokk þeir myndu kjósa segist 64,1 prósent vera á móti stækkun, en 35,9 prósent fylgjandi. Af þeim segjast 80,6 prósent þeirra sem ekki myndu kjósa eða skila auðu vera á móti stækkun, 79,3 prósent þeirra sem neita að gefa upp hvað þeir myndu kjósa eru andvíg stækkun og 59,0 prósent þeirra sem eru óákveðnir eru mótfallin stækkun álversins.
Lítill munur er á afstöðu fólks eftir búsetu til stækkunar. Þannig segjast 63,9 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu vera á móti stækkun, en 62,0 prósent íbúa á landsbyggðinni.
Meiri munur er á afstöðu til stækkunar eftir kyni. 68,0 prósent kvenna eru andvíg stækkun, en 58,3 prósent karla.
Hringt var í 800 kjósendur laugardaginn 24. febrúar og skiptust svarendur hlutfallslega eftir kjördæmum og jafnt eftir kyni. Spurt var; Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) stækkun álversins í Straumsvík? 70,9 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar."


Þöggun breska varnarmálaráðuneytisins

indipendent

Þöggunartilraunir breska varnarmálaráðuneytisins á verki listamannsins Steve McQueen er ekki fyrsta tilraun yfirvalda til að hefta málfrelsi og tjáningarfrelsi listamanna sem og almennra borgara. Sorglegt að þetta sé aftur og aftur að koma upp. Þetta mál er tilefni til langra skrifa en ég hef bara ekki tíma núna en bendi ykkur á umjöllun The Independent og viðtal við Steve McQueen í tilefni hinna virtu Turner verðlauna sem hann hlaut árið 1999. Hér er greinin öll á mbl.is:

"Varnarmálaráðuneyti Bretlands reyndi að stjórna gjörðum breska myndlistarmannsins og Turner-verðlaunahafans Steve McQueen þegar hann var að gera myndlistarverk sem tengdust Íraksstríðinu fyrir myndlistarhátíð sem nú stendur yfir í Manchester. McQueen segir varnarmálaráðuneytið hafa gert sér erfitt fyrir og neitað honum um upplýsingar um fjölskyldur hermanna sem féllu í Írak og ekki viljað leyfa honum að ræða við þær. Embættismenn þar á bæ hafi spurt hann hvort hann gæti ekki gert landslagsmálverk í staðinn.

Verkið heitir For Queen and Country og eru frímerki unnin úr fjölskyldumyndum 100 fallinna, breskra hermanna sem voru við störf í Írak. McQueen segist hafa verið tvö ár að vinna verkið fyrir Konunglega hersafnið í Bretlandi, sem styrkti hann til þess.

Steve.McQueen

98 fjölskyldur fallinna hermanna unnu með McQueen að verkinu. Forstöðumaður breska póstsins, Royal Mail, hefur neitað beiðni McQueen um að fjöldaframleiða frímerkin sem söfnunargripi til minningar um fallna hermenn. Á forsíðu Independent í dag er frímerki með mynd af hermanninum John Jones, en móðir hans veitti blaðinu heimild til að nota myndina á forsíðu."


mbl.is Varnarmálaráðuneyti Breta hindraði störf myndlistarmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins Martin Scorsese og Al Gore

martin inconvenient_truth

Það var heldur betur kominn tími til að Martin Scorsese fengi hinn eftirsótta Óskar (e.Oscar:) og sannarlega gaman að Al Gore myndin Óþægilegur sannleikur (e. An Inconvenient Truth) fengi verðlaun sem besta heimildarmyndin. Þjóðverjar eru að rifna úr stolti (ef það er þá hægt) fyrir að myndin Líf annarra (þ. Das Leben der Anderen) fengi Óskar gamla gull frænda. Der Spiegel segir svo frá hér. Hér er annars fréttin af mbl.is.

"Kvikmyndin The Departed í leikstjórn Martin Scorsese fékk Óskarsverðlaunin í ár sem besta myndin, þá fékk breska leikkonan Helen Mirren verðlaun sem besti kvenleikarinn fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni The Queen. Forest Whitaker hlaut hins vegar verðlaunin í flokki karlleikara fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin í kvikmyndinni The Last King of Scotland.
Scorsese hafði áður verið tilnefndur fimm sinnum fyrir kvikmyndir sínar, en þetta eru fyrstu Óskarsverðlaunin sem hann hlýtur.
Þá var tónskáldið Ennio Morricone heiðraður fyrir ævistarf sitt við gerð kvikmyndatónlistar,
Bandaríska leik- og söngkonan Jennifer Hudson fékk Óskarinn fyrir leik í aukahlutverki fyrir myndina Dreamgirls og Alan Arkin fékk einnig verðlaun fyrir besta leikinn í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í myndinni Little Miss Sunshine. Myndin An Inconvenient Truth, sem Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, gerði um umhverfismál, var valin besta heimildarmyndin. Þýska myndin Das Leben der Anderen var valin besta erlenda myndin en myndin Pan's Labyrinth, sem keppti einnig í þeim flokki, fékk verðlaun fyrir förðun og listræna stjórnun. Tölvuteiknimyndin Happy Feet var valin besta teiknimyndin."


mbl.is Scorsese fékk loks Óskarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir frábæran stuðning

gúndi

Í  gær, laugardag var kosið í stjórn VG. Formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri voru sjálfkjörnir en gengið var til atkvæða um aðra stjórnarmeðlimi. Úrslit voru birt fyrir stundu og eru sem hér segir, talið upp í röð eftir atkvæðamagni:
 
Aðalmenn:
Svandís Svavarsdóttir
Hlynur Hallsson
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Bjarkey Gunnarsdóttir
Árni Þór Sigurðsson
Ólafur Þór Gunnarsson
Gestur Svavarsson
 
Varamenn:
Ólafía Jakobsdóttir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Auður Lilja Erlingsdóttir
Guðmundur Magnússon

Takk fyrir frábæran stuðning í stjórnina. Nú brettum við upp ermar og breytum rétt í vor!

Myndina hér fyrir ofan tók Gúndi á setningu þessar glæsilega landsfundar þegar tríóið Sinistra verde og söngkonan Jóhanna Vigdís léku og sungu fyrir troðfullu húsi. Það eru fleiri myndir á vef vg.is


mbl.is Kosningaáherslur VG kynntar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin fallin, VG og Samfó jafn stór

þingmenn Ný könnun Fréttablaðsins ítrekar enn og aftur að ríkisstjórnin er kolfallin. Að vísu lækkar Samfó aðeins en Framsókn hækkar aftur en samt er núverandi stjórnarandstaða með 34 þingmenn á móti 29. Við erum hársbreidd frá glæsilegri vinstri-velferðar-ríkisstjórn. Stefnum að því saman. Hér er forsíðufréttin öll:

"
Samfylking og VG jafnstór

Um 24 prósent segjast nú myndu kjósa hvern flokk fyrir sig, Samfylkingu og Vinstri græn. Tæp 37 prósent styðja Sjálfstæðisflokkinn. Framsóknarflokkurinn mælist nú tvöfallt stærri en í síðustu könnun og segjast nú tæp níu prósent myndu kjósa flokkinn. Rúm sex prósent segjast myndu kjósa Frjálslynda flokkinn.
 Skoðanakönnun Í annarri skoðanakönnun Fréttablaðsins í röð segjast rúm 23 prósent myndu kjósa Vinstri græn, væri boðað til kosninga nú.

Skoðanakönnun Í annarri skoðanakönnun Fréttablaðsins í röð segjast rúm 23 prósent myndu kjósa Vinstri græn, væri boðað til kosninga nú. Myndi flokkurinn samkvæmt því fá 15 þingmenn kjörna, 10 fleiri en flokkurinn hefur nú. Í síðstu kosningum hlaut flokkurinn 8,8 prósent atkvæða. "Við erum mjög ánægð með þetta og það er magnað að við skulum vera að fá nánast sömu mælingu aftur. Það sýnir að þetta er engin bóla hvað okkur varðar," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Fylgi Samfylkingar mælist nú 24,0 prósent og myndi flokkurinn jafnframt fá 15 þingmenn kjörna, fjórum færri en flokkurinn hefur nú en 30,9 prósent kjósenda veittu flokknum atkvæði sitt í síðustu kosningum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist telja að niðurstöðurnar séu innan skekkjumarka, en er sannfærð um að Samfylking sé í sókn og eigi mikið inni hjá þeim sem enn eru óákveðnir. Nú sögðust tæp 34 prósent, af þeim 800 sem hringt var í, enn vera óákveðin.

forsíða.fblTvöfalt fleiri segjast nú myndu kjósa Framsóknarflokkinn en í síðustu könnun blaðsins, eða 8,8 prósent. Samkvæmt því myndu framsóknarþingmennirnir verða fimm, sex færri en sitja nú á þingi fyrir flokkinn en hann hlaut 17,7 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, segir niðurstöðuna vera í samræmi við tilfinningu sína um að flokkurinn sé í sókn. "Jafnframt er ljóst að meginverkefnin eru fram undan og við erum að sækja í miklu meira fylgi en þarna kemur fram."

Alls 36,8 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, sem fengi samkvæmt því 24 þingmenn. Flokkurinn hefur nú 23 þingmenn. Þetta er nánast sama fylgi og í síðustu könnun blaðsins en flokkurinn hlaut 33,7 prósent atkvæða í kosningunum 2003. "Ég er mjög sátt við okkar hlut í þessu og það er augljóst að við erum á þessu róli," segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Frjálslyndir missa fylgi frá síðustu könnun blaðsins þegar 7,3 prósent sögðust myndu kjósa Frjálslynda. Nú segjast 6,1 prósent myndi kjósa þá, en flokkurinn hlaut 7,4 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Þingmenn flokksins yrðu fjórir samkvæmt því, einum færri en sitja nú á þingi fyrir flokkinn. "Frjálslyndi flokkurinn á eftir að kynna sína framboðslista, þannig að ég reikna með að þetta muni breytast eitthvað þá," segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins. "En þetta er ekkert óviðunandi niðurstaða í sjálfu sér."


mbl.is Fylgi VG og Samfylkingar mælist álíka mikið í nýrri könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölbreytni og skapandi starf

landsfundurvg.Steingrímur og Katrín Jakobsdóttir voru endurkjörin fomaður og varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Í hópinn bætast þær Sóley Tómasdóttir, bloggfélagi, sem var kjörin nýr ritari flokksins og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði sem var kjörin nýr gjaldkeri VG. Þær voru sjálfkjörnar við mikil fagnaðarlæti.

Fullt var út úr dyrum á málþingi  um nýsköpun í atvinnumálum sem haldið var í tengslum við Landsfundinn á Grand Hóteli áðan. Þetta var frábært málþing og frummælendur eru svo sannarlega á sömu línu og Vinstri græn að mörgu leiti. Hér er frétt af vg.is
 
"Málþingið bar yfirskriftina „Ótæmandi möguleikar: Íslenskt atvinnulíf á tímamótum.“ Frummælendur koma úr ýmsum áttum, Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra á Hótel Djúpavík í Árneshreppi, fjallaði um úrræðaleysi stjórnvalda í byggðamálum og samgöngumálum. Eva kallaði eftir stuðningi við atvinnurekstur á landsbyggðinni í stað stöðugrar mismununar og lýsti því hvernig mismunandi aðgengi að fjármagni getur hamlað skapandi uppbyggingu atvinnu í dreifðari byggðum landsins. Guðbjörg Glóð Logadóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Fylgifiska, lýsti því hvernig hún fann sig knúna til að bregðast við og blása til sóknar fyrir íslenska fiskvinnslu með það að markmiði að halda virðisaukanum af fiskvinnslunni í landinu. Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku og formaður stjórnar Samtaka sprotafyrirtækja, byrjaði á að lýsa frumkvöðlum sem “skrítnum skrúfum” sem eiga það sameiginlegt að elta drauma sína í allar mögulegar og ómögulegar áttir. Hann sagði áríðandi að styðja við sprotafyrirtækin og efla fjárfestingu samfélagsins í þeim í því skyni að tryggja rekstur þeirra fyrstu rekstrarárin áður en almennir fjárfestar, með óþolinmóðara fjármagn, koma að þeim. Svanborg R. Jónsdóttir, sérfræðingur í nýsköpunarfræðslu, fjallaði um mikilvægi þess að efla nýsköpunarfræðslu í menntakerfinu og leggja áherslu á að kenna börnum að horfa gagnrýnum og greinandi augum á umhverfi sitt í því skyni að koma auga á tækifæri og lausnir. Allir fundarmenn tóku undir það að sköpunarkrafturinn væri lykilatriði í mótun íslensks atvinnulífs og fjallaði Svafa Grönfeldt um mögulega framtíð Íslands. Hún sagði mikilvægast að efla alþjóðlega og þverfaglega hugsun í skólakerfinu öllu og leggja áherslu á aukna samskiptafærni og sköpunarkraft í atvinnulífinu og samfélaginu öllu.  Hún sagði samfélagsgerðina skipta sköpum um það hvort Íslendingar vildu búa hér á landi eftir fimmtíu ár og tóku fundamenn undir það að framtíðarsamfélagið væri samfélag þátttöku þar sem allir eru hreyfiafl."

Það var mikill samhljómur í málfutningi frummmælenda og þeirra fjölmörgu sem tóku þátt í umræðum. Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi og Ásbjörn Björgvinsson forstöðumaður Hvalasafnsins á Húsavík og bæjarfulltrúi stóðu sig frábærlega sem fundarstjórar.

mbl.is Steingrímur endurkjörinn formaður og Katrín varaformaður VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsum ástina - höfnum klámi!

hjarta

Af gefnu tilefni birti ég hér ályktun Landsfundar Vinstri grænna í heild sinni og tek undir með þeim sem hafa gagnrýnt fabúlerinagar blaðamanns mbl.is í lok fréttarinnar. En hér er ályktunin fína: 

"Vinstrihreyfingin grænt framboð fagnar þeirri einörðu samstöðu sem í ljós kom þegar klámframleiðendur hugðust standa fyrir ráðstefnu á Íslandi dagana 7.-11. mars 2007. Samstöðu sem hafin var yfir pólítíska flokkadrætti, bandalög, vinahópa og hugmyndafræðileg átök. Samstöðu samfélags sem tók undir með kvennahreyfingu undanfarinna alda, reis upp og mótmælti klámvæðingu af krafti. Samstöðu sem leiddi til þess að ráðstefnunni var aflýst.
 
Órjúfanlegt samhengi ríkir milli kláms, vændis og annars kynferðisofbeldis. Enginn á að þurfa að taka þátt í kynferðislegum athöfnum gegn vilja sínum. Einstaklingur sem starfar í klámiðnaðinum vegna neyðarinnar einnar og/eða gegn vilja sínum er því beittur kynferðisofbeldi. Ljóst er að sú er raunin með stóran hluta þeirra sem starfa í klámiðnaðinum.
 
Klámvæðingin hefur auk þess ótvíræð neikvæð áhrif á samfélagið og hegðan einstaklinga innan þess. Rannsóknir kynjafræðinga hafa sýnt fram á sterkt samband milli neyslu kláms og ofbeldis gagnvart konum og börnum. Í kjölfar klámvæðingarinnar eru nauðganir orðnar grófari og hópnauðganir alvarlegri, í fullu samræmi við þróun klámvæðingarinnar.
 
Vinstrihreyfingin grænt framboð mun halda vegferðinni áfram. Enn er klám fyrir augum okkar daglega, vændi þrífst hérlendis sem aldrei fyrr og kynferðisofbeldi gagnvart konum og börnum er daglegt brauð. Pólítískur vilji er forsenda breytinga, ásamt bættu réttar- og dómskerfi og eflingu kynjafræðimenntunar á öllum skólastigum með sérstakri áherslu á lykilfólk í samfélagslegri umræðu, s.s. í uppeldisgreinum, heilbrigðisgreinum, lögfræði, fjölmiðlafræði, stjórnmálafræði o.s.frv.
 
Sterk sjálfsmynd einstaklinga sem bera virðingu hver fyrir öðrum og njóta kynlífs á eigin forsendum er forsenda samfélags án ofbeldis. Til þess er mikilvægt að bæta velferðarsamfélagið í heild sinni og brjóta upp kynjakerfið. Það ætla Vinstri græn að gera."


mbl.is VG fagnar samstöðu gegn klámráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt upphaf á Landsfundi

landsfundur xvsmaller

Það var rífandi stemning á setningu Landsfundar Vinstri grænna í dag. Gaman að vera hluti af svona kraftmikilli og bjartsýnni hreyfingu fólks. Það er eitthvað að gerast, það ilmar af vori og maður fann fyrir því í dag. Frábært að hitta allt þetta nýja fólk sem gengið hefur til liðs við Vinstri græn á síðustu mánuðum og maður finnur kraftinn og gleðina. Opnunarathöfnin var flott, Kolbrún Halldórsdóttir stjórnaði af myndarskap og sérstaklega gott þótti mér að heyra ávörp fulltrúa tveggja kynslóða, þeirra Snærósar Sindradóttur og Málfríðar Sigurðardóttur, við setninguna. Ræða Steingríms var einnig kraftmikil og fín eins og maður átti reyndar vona á. Það er hægt að lesa hana alla hér. Og svo auðvitað sem pdf í frétt mbl.is.

Svo kíkti ég á opnun í Reykjavíkurakademíunni, Hoffmannsgalleríi og Hafnarhúsinu í matahléinu til að ná smá í Vetrarhátíð og hitti helling af góðu fólki. Um kvöldið voru svo hörku umræður. Þetta verður frábær helgi og dagskráin byrjar strax í fyrramálið og eftir hádegið klukkan 13 er málþing þar sem yfirskriftin er: Ótæmandi möguleikar: Íslenskt atvinnulíf á tímamótum. Þar eru krafta konur með erindi og í pallborði og hörkukarl líka. Kosning í stjórn fer fram klukkan 15 og ég ætla að gefa kost á mér. Þetta verður frábært.   


mbl.is Steingrímur: Bullandi stemning fyrir því að fella ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfismál á landsfundi Vinstri grænna

brynjar.gauti 

72,8% aðspurðra í könnun Capacent sem gerð var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands vilja að stjórnmálaflokkarnir leggi meiri áherslu á náttúruvernd og umhverfismál. 22,6% telja að flokkarnir leggi hæfilega áherslu á þennan málaflokk og aðeins 4,6% svöruðu því til að flokkarnir ættu að leggja minni áherslu á málaflokkinn. Það er athyglisvert að kjósendur Vinstri græna vilja að flokkarnir leggi enn meiri áherslu á umhverfismál en þeir sem ætla að kjósa Frjálslynda finnst of mikil áhersla vera lögð á þessi mál. Annars er hægt að ná í þessa könnun í pdf formi á heimsaíðu Náttúruverndarsamtakanna.

Fimmti reglulegi Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefst svo í dag og stendur til sunnudags á Grand hóteli í Reykjavík.Yyfirskriftinni landsfundarins er Allt annað líf! og þar verður auðvitað mikið rætt um umherfismál en einnig fjölmörg önnur mál. Hér er dagskráin í dag en annars má ná í alla dagskrána hér og svo drög að samþykktum fundarins hér. Þetta verður skemmtileg helgi einnig með Vetrarhátið.

Dagskráin er svohljóðandi:
 
Föstudagur 23. febrúar
15:30    Fundargögn afhent
16:30    Setningarathöfn
18:00    Kvöldverðarhlé
19:30    Starfsmenn fundarins kosnir og kjörbréf samþykkt
            Málefnahópar skipaðir
            Drög að ályktunum kynnt
            Lagabreytingar – fyrri umræða
21:00    Almennar stjórnmálaumræður

Álaugardag byrjar dagskráin svo snemma eða klukkan 8:00 með morgunverðarfundum og meðal þess sem er á dagskrá er klukkan 15:00    Kosning formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og annarra stjórnarmanna og klukkan 16:00    Málefnahópar taka til starfa: Heilbrigðismál, Landbúnaðarmál, Atvinnumál, Umhverfismál, Innflytjendur og aðlögun, Utanríkis- og Evrópumál, Lagahópur, Ályktanahópur, Velferðar- fjölskyldu-, og öldrunarmál.


mbl.is Vilja meiri áherslu á umhverfismál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband