Leita í fréttum mbl.is

Lesefni fyrir helgina

436920A Verst að missa af göngum í dag en við erum að fara vestur á Stykkishólm að skoða Vatnasafn Roni Horn og Stórvalsmyndirnar hennar. Ég fletti Blaðinu áðan og þessar hugmyndir um miðborg við Geirsnef eru skemmtilegar og einhver Manahattanfílingur í þeim. Trausti Valsson er líka snillingur og Sturla Snorrason hefur greinilega skoðað þróun borgarinnar. Það eru heldur ekki allir sem vilja aka í klukkutíma úr einhverju úthverfi á hverjum degi í vinnuna. Þetta þurfum við að skoða vandlega.

Tillögurnar sem kynntar voru um daginn um uppbyggingu Austurstrætis eru einnig glæsilegar og kominn tími til að sumir átta sig á því að það dugar ekki alltaf að rífa niður það sem er gamalt til að byggja steypuklumpa í staðinn. Það er skemmtileg grein eftir KGA í Mogganum í gær með spurningu handa bæjarstjórn Akureyrar sem verða vonandi til þess að sumir sjái kostina við að bjarga Hafnarstræti 98. Viðtalið við Hólmstein Snædal á N4 er einmitt komið á netið og hægt að horfa á það hér. Svo er greinin hans Árna Þórs í Blaðinu í morgun holl lesning fyrir Sam-fólkið. Sem sagt nóg að lesa.


mbl.is Nýr miðbær gæti losað stíflurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

iPhone lækkar um 33% í BNA

ipod_hero_touch_20070905Apple heldur áfram að vera í fararbroddi með MP3 spilarana (núna tala allir bara um iPod en MP3 er eiginlega dautt). Í gær voru kynntar nýjustu útgáfurnar og þeirra á meðal er iPod touch sem er nauðalíkur iPhone. Við sama tækifæri kynnti Steve Jobs að iPhone lækkaði úr 600 dollurum í 400. Það má líka vænta nýrri og enn betri iPhone á næstu vikum. Minni og flottari iPod nano með stórum skjá var einnig sýndur og fleira og fleira. Þetta dugði samt ekki til að hressa við kauphallargaurana og hlutabréf í Apple féllu í verði. Aldrei hægt að gera þessum náungum til geðs eða þeir eru bara seinir að átta sig. Hugi sonur minn fylgist með þessu öllu í beinni útsendingu í Makkanum sínum og segir mér svo fréttirnar með morgunmatnum af mikilli innlifun.

mbl.is Apple kynnir endurhannaðan iPod
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Háskólinn á Akureyri

Það er gleðiefniHáskólinn á Akureyri skuli vera orðinn 20 ára og ég óska öllum starfsmönnum og nemendum til hamingju með það. Skólinn hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og þrátt fyrir fjársvelti og skilningsleysi hjá ríkisstjórnum hefur tekist að efla skólann og enn er fólk stórhuga þar á bæ. Það væri hægt að fara mörgum orðum um gildi skólans fyrir Akureyri, Eyjafjarðarsvæðið og landið allt en ég ætla að sleppa því núna. Nenni ekki að skrifa einhverja lofrullu eins og stjórnmálamenn halda gjarnan á tyllidögum en standa svo ekki við neitt þegar kemur að því að standa við stóru orðin.

En það eru einnig ánægjulegar fréttir af framvindu mála með Hafnarstræti 98 (Hótel Akureyri) því í gær var ítarlegt viðtal við Hólmstein Snædal húsasmið og Vigni Þormóðsson eiganda hússins á N4. Viðtalið er enn ekki komið á netið en ætti að koma hér hið fyrsta. Hólmsteinn fer yfir merka sögu hússins og skoðar það í krók og kima ásamt Dagmar dagskrárgerðarkonu. Hann segir að húsið sé í mun betra standi en fullyrt hafi verið og að þetta sé hið besta hús. Hólsteinn veit hvað hann syngur og hefur sennilega bestu þekkingu á endurbyggingu gamalla húsa á Akureyri og þó víðar væri leitað. Vignir segir svo að það sé sér ekkert kappsmál að rífa húsið þó að það standi til innan örfárra vikna. Hann sé alveg til í að selja húsið einhverjum sem vill gera það upp. Þetta eru góðar fréttir og bjartsýni mín á að hægt verði að bjarga húsinu hefur tekið kipp enda er vilji allt sem þarf. Þá er bara að finna stórhuga fólk sem er til í að ráðast í verkið og ég hef ákveðið fólk í huga sem vonandi slær til!

Og aftur á Háskólanum því nemendur í fjölmiðlafræði halda úti ágætis fréttavef, Landpóstinum og þar er einmitt könnun í gangi um hvort fólk vilji láta rífa húsið. Síðast þegar ég skoðaði var mikill meirihluti sem sagði NEI ég vil ekki láta rífa það. Það er þvert á niðurrifsumræðuna sem sumir háværi halda uppi. Það er ánægjulegt að fólk getur séð verðmæti í því sem gamalt og gott er og nú er bara að þrýsta á um að viðhalda, endurbyggja og nýta.


mbl.is HA gerir samstarfssamning við BioPol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurbyggjum Hótel Akureyri

436647A Það er ekkert mál að endurbyggja Hótel Akureyri og rökin að það hafi staðið ónotað lengi duga ekki. Þeir sem best þekkja segja að vel megi endurbyggja húsið jafn glæsilega og París og Hamborg sem var ekki í góðu ásigkomulagi fyrir nokkrum árum en glansar nú sem perla.  "Bögglageymslan" hafði staðið ónýtt og í niðurníðslu í 30 ár en var gerð glæsilega upp og hýsir nú fallegan veitingastað Friðriks V. Það eru því engin rök að segja að húsið líti illa út í dag. Ég benti þessum niðurrifsmönnum á það fyrir tveimur árum að það væri mun betra að endurbyggja húsið og innrétta íbúðir á efri hæðunum og versalnir á jarðhæðinni eins og verið hefur. Svörin sem ég fékk voru að það væri ekki eins hagkvæmt og að rífa niður, byggja nýtt, miklu stærra steinhús sem fyllir út í byggingareitinn og bæta nokkrum hæðum ofan á! Auðvitað er það ekki eins hægkvæmt en einhver hámarksnýting er bara ekki alltaf það sem skiptir mestu máli. Hótel Akureyri er hluti af fallegri húsaröð eins og sést á mynd Skapta Hallgrímssonar, sem verður eyðilögð ef húsið verður rifið. Á öllum tillögunum sem fengu verðlaun í samkeppninni góðu "Akureyri í öndvegi" stendur húsið enda getur það orðið bæjarprýði á ný. Það er ekki of seint að forða stórslysi en þá verður að bregðast skjótt við. Hér er grein sem ég skrifaði í vor um endurbyggingu hússins. Nú fer ég og næ í Moggann og les um málið.
mbl.is Bíða eftir að Hótel Akureyri verði rifið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Vinstri græn

183395A Það er frábært að fá jafn öfluga konu og Lilju sem framkvæmdastýru þingflokks Vinstri grænna. Til hamingju Lilja og til hamingju Vinstri græn. Svo nota ég bara tækifærið og óska Kristínu Ástgeirsdóttur til hamingju með að taka við starfi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu og ég óska öllum jafnréttissinnum til hamingju með frábæra konu í það mikilvæga starf. Viðtalið við Kristínu í Fréttablaðinu um helgina segir okkur að nú verði tekið til hendinni og jafnréttisfræðsla í skólum er gott mál. Velkomin norður Kristín!
mbl.is Guðfríður Lilja framkvæmdarstýra þingflokks VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atlantsolía klikkar líka, allir að hjóla

atlantsolia_logoÉg var að vonast til að Atlantsolía myndi ekki sigla í kjölfar hinna stóru olíufélaganna og hækka bensínið, en það stóð nú ekki lengi. Svar okkar er auðvitað að hjóla meira, ganga eða taka strætó. Þeir sem endilega verða að fara með bíl geta svo sameinast um ferðir t.d. í vinnuna og í skólann. Hvernig væri að gera eitthvað í málunum?
mbl.is Atlantsolía hækkar einnig eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnanlega flottir jökulsvelgir

03spea.xlarge1

Myndasería Ólafs Elíassonar sem Lesbók Moggans birti um síðustu helgi er ótrúlega falleg en um leið óhugnanleg. Umfjöllun Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur er afar vel gerð og myndin sem Magnús Hjörleifsson tók af Ólafi er fín og frábært að New York Times birti einnig umfjöllun um þetta verk Ólafs. Það er svo örugglega spennandi sýning sem Ólafur er að opna í Museum of Modern Art í San Francisco þann 8. september 2007. Það væri auðvitað gaman að fara en ansi langt.

03spea.large2

Við ætlum að skreppa á aðra opnun sem er ekki alveg eins langt í burtu en samt smá spölur, nefnilega í Vatnasafninu í Stykkishólmi hjá Roni Horn.


mbl.is Ólafur Elíasson sýnir jökulsvelgjamyndir í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skerða almannaþjónustuna

20070208161442169811

Niðurstöðurnar úr könnun Háskóla Íslands blása í mann baráttuhug og enn og aftur sýnir fólkið í landinu okkur að ráðamenn þessarar þjóðar eru á villigötum. Við viljum ekki skerta almannaþjónustu og fólk er búið að fá nóg af þessari einkavæðingu og komugjöldum og öllu bullinu. Þessar niðurstöður stinga uppí frjálshyggjuplebbana sem er alveg sama um velferðarkerfið en vilja bara skattalækkanir fyrir hina ríku. Við viljum greiða sanngjarnan skatt fyrir öfluga almannaþjónustu sem nýtist fólki. Ekki skerða almannaþjónustuna. Svona er fréttin af ruv.is:

"Skattalækkun skerði ekki þjónustu

Ríflega 70% landsmanna vilja ekki skattalækkanir verði það til þess að draga úr opinberri þjónustu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem fræðimenn við Háskóla Íslands vinna að. Þá hefur aldrei verið meiri munur á kosningahegðun kynjanna en í alþingiskosningunum í vor.

Fræðimenn við Háskóla Íslands vinna nú að íslensku kosningarannsókninni en það er spurningakönnunum sem lögð var fyrir kjósendur eftir alþingiskosningarnar í vor. Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur greindi frá því í þættinum Í vikulokin á Rás eitt í dag að aldrei hefði verið meiri munur á kosningahegðun karla og kvenna en í vor."

20070208161443046882

Við Vinstri græn gengum meðfram Þjórsá og komumst enn og aftur að því að það verður að stoppa Landsvirkjun í hernaðinum gegn landinu og fólkinu sem býr í nágrenni þeirra staða sem þeir ásælast. Græðgin í forsvarsmönnum Landvirkjunar er óhugnanleg og hana verður að stöðva. Maður dáist að fólkinu í sveitinni sem síðustu ár af veikum mætti en ótrúlegum dugnaði hefur barist fyrir landið og gegn ásókn Landsvirkjunar með alla peningamaskínuna á bak við sig. Við verðum að styðja þetta fólk og koma í veg fyrir frekari slys. Við verðum að bjarga Þjórsá! Hér eru tvær myndir frá Landsvirkjun af fyrirhuguðum lónum þeirra sem munu færa á kaf gróið land og fallega hólma. Ég bendi einnig á vefinn Þjórsá.com ég dáist að þessu fólki sem á við ofurefli að etja en gefst ekki upp. Takk fyrir að sýna okkur þetta frábæra land og fyrir að standa vörð um verndun þess. 


mbl.is Vilja ekki skattalækkanir ef það skerðir þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rífandi stemning hjá VG

vgÞað er frábært að vera á Flúðum að fagna góðum árangri úr kosningunum og leggja drög að enn meiri sigrum á næstu misserum. Það skiptir líka miklu máli að veita aðhald og tala áfram fyrir góðum málum. Þessi ríkisstjórn lofar heldur ekki góðu og virðist verða framlenging á fyrri leiðindastjórn. En það verður bara enn skemmtilegra í stjórnarandstöðunni og gott að vera stærsti flokkurinn þar. Það ríkir mikill einhugur í Vinstrihreyfingunni grænu framboði og menn skemmta sér yfir staksteinum (úr glerhúsum). Svo eru sumir auðvitað að vorkenna vinstrisinnunum í Samfó sem hljóta að fara að átta sig.

Það verður rætt saman til ellefu í kvöld og áfram í fyrramálið. Ég hlakka til síðsumarferðar hér á morgun. Þetta verður góð dagsferð um hluta Þjórsár undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur sem lýkur með grilli.


mbl.is Steingrímur: Hlutverk VG að vera mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríski herinn þrífi eftir sig sjálfur

436064AEr ekki bara hægt að æfa síg í því að hreinsa upp draslið og sprengjurnar sem Herinn skyldi eftir sig og sagði okkur að laga bara til. Ótrúlegur aulaskapur af þeim sem ætluðu að "semja" um brottför hersins að þora ekki að segja múkk við bandaríska herinn. Og svo eru sóttir hingað "sérfræðingar" sem hafa verið í Írak, Afganistan og fleiri stríðshrjáðum löndum (af völdum bandaríska hersins). Áhersla er lögð á hryðjuverkasprengjur! Er ekki allt í lagi!


mbl.is Sprengjueyðingaræfing hófst í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefán Jónsson opnar sýninguna "Skuggar og svipir" á Café Karólínu laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14

stefan.JPG
Stefán Jónsson

Skuggar og svipir

01.09.07-05.10.07   


Velkomin á opnun laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14

Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755

Laugardaginn 1. september, 2007, klukkan 14 opnar Stefán Jónsson sýninguna "Skuggar og svipir" á Café Karólínu.

Sýningin heitir Skuggar og svipir. 24 svart hvítar ljósmyndir 20 x 20 cm hver og 6 ljósmyndir í lit 33 x 45 cm hver. Myndefnið er í öllum tilfellum höfundurinn sjálfur.

Stefán Jónsson er fæddur á Akureyri 1964 og stundaði myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í School of Visual Arts í New York. Hann hefur sett upp fjölda sýninga víðsvegar um heim, nú síðast í Safni í Reykjavík og í Jónas Viðar gallery á Akureyri.

Nánari upplýsingar veitir Stefán í netfangi melman(hjá)simnet.is og í síma 8645448

Meðfylgjandi mynd er af einu verka Stefáns sem hann sýnir á Café Karólínu.

Stefán verður viðstaddur opnunina. Sýningin á Café Karólínu stendur til 5. október, 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 1. september, klukkan 14.

Á sama tíma stendur yfir sýning Brynhildar Kristinsdóttur á Karólínu Restaurant.

Til föstudagsins 31. ágúst er enn tækifæri til að sjá sýningu Dagrúnar Matthíasdóttur "Súpur" á Café Karólínu.

Næstu sýningar á Café Karólínu:

06.10.07-02.11.07        Marsibil G. Kristjánsdóttir
03.11.07-30.11.07        Birgir Sigurðsson
01.12.07-04.01.08        Steinunn Helga Sigurðardóttir
05.01.08-02.02.08        Guðrún Vaka
03.02.08-02.03.08        Steinn Kristjánsson
03.03.08-04.04.08        Unnur Óttarsdóttir
05.04.08-02.05.08        Guðmundur R Lúðvíksson
03.05.08-06.06.08        Kjartan Sigtryggsson

Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson


Jónas Hallgrímsson 200 ára


Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jónasar Hallgrímssonar verður opnuð samsýning 21 myndlistarmanns í Ketilhúsinu í Listagilinu á Akureyri laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00. Ber hún yfirskriftina "Skyldi' ég vera þetta sjálfur".
Jónas er kveikjan að öllum verkum sýningarinnar og verður fjölbreytt flóra myndlistarmanna sem eiga við hann samtal.
Sýningarstjóri er Þórarinn Blöndal.   
Sýninginn mun standa  framyfir afhendingu Sjónlistarverðlaunanna 2007 sem fram fer á Akureyri 21. til 23. september.
Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 og 17.00
    
Eftirtaldir listamenn munu taka þátt í sýningunni:

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Arna Valsdóttir
Áslaug Thorlacius
Birgir Snæbjörn Birgisson
Finnur Arnar
Hanna Hlíf Bjarnadóttir
Helgi Þórsson
Hlynur Hallsson
Hulda Hákonardóttir
Ilmur Stefánsdóttir
Jón Garðar Henrysson
Jón Laxdal
Jón Sæmundur Auðarson
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Jónas Viðar
Joris Rademaker
Megas
Margrét Blöndal
Pálína Guðmundsdóttir
Ragnar Kjartansson
Þorvaldur Þorsteinsson

Menningarmiðstöðin Listagili
Akureyri Cultural Center
Sími/Tel: 466 2609
listagil@listagil.is
www.akureyri.is
http://listasumar.blog.is


Vonandi verða Kanadamenn vingjarnlegir


Ég er mjög hrifinn af vináttuleikjum og er viss um að Kanadamenn fari ekki illa með okkur. Þó að íslenska karlalandsliðið í fótbolta sé í sæti númer hundrað og eitthvað með Súdan og hafi aldrei verið neðar. Þetta er jú vináttuleikur. Hallur Gunnarsson frændi minn og Andrea Hjálmsdóttir voru að flytja til Kanada ásamt Fönn og Dögun og þau eru með ansi flott lén nefnilega kanada.is. Þau eru dugnaðarforkar og strax farin að mótmæla stríðsbrölti í Vancouver sé ég á síðunni þeirra. Ég spái því að leikurinn fari eitt - eitt.


mbl.is Stolt og barátta eru aðalatriðin gegn Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyjamenn miklir húmoristar

434465AÞað er fyrir löngu ljóst að Vestamannaeyingar eru upp til hópa miklir brandarakallar. En að ætlast til þess að fá einkaleyfi á nafninu "Þjóðhátíð" eða "Brekkusöng" er einum of gott. Mér er sama þó að ÍBV fá einkaleyfi á nafninu "Húkkaraball" enda er það frekar ömurlegt nafn á balli og verður þá vonandi notað af þeim einum og bara einu sinni á ári. 
mbl.is Eyjamenn þeir einu sem mega halda Húkkaraball
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær umfjöllun um Ísland í GeoSaison

70050934_max

Flott hestamynd á forsíðunni á GeoSaison og skemmtilegt að athyglinni skuli beint að Vestfjörðunum sem hingað til hafa ekki verið hluti af aðal ferðamannaleiðinni. En vonandi er það að breytast og þjóðverjar munu flykkjast til Vestfjarða eftir þessa ítarlegu umfjöllun í GeoSaison. Ósnortin náttúra Vestfjarða á eftir að margfaldast í verðmæti í framtíðinni og vonandi verður ekki allt eyðilagt með risaolíuhreinsistöð. Hér er er fréttin af mbl.is:

Mikil umfjöllun er um Ísland í ágústhefti þýska ferðatímaritsins GeoSaison. Auk þess að prýða forsíðu blaðsins þekur umfjöllunin alls 30 blaðsíður í tímaritinu og er ljósmyndum af íslenskri náttúru gert hátt undir höfði.

Arthúr Björgvin Bollason, sem sér um kynningarmál fyrir Icelandair í Mið-Evrópu, segir að þótt greinar um Ísland séu algengar í ferðatímaritum sé mjög óvenjulegt að sjá svona stóra og ítarlega umfjöllun um landið eins og birt er í GeoSaison. "Við erum mjög ánægð með þetta. "Þetta er mjög öflugur miðill," segir hann.

GeoSaison er vel þekkt tímarit um ferðamál og selst í á annað hundrað þúsunda eintökum. Leikur enginn vafi á að umfjöllunin mun vekja mikla athygli, skv. upplýsingum Arthúrs Björgvins. "Það er óhætt að segja að Geosaison sé öflugasta tímaritið á þessu sviði. Það hafa stöku sinnum komið greinar um Ísland á undanförnum árum en aldrei neitt í líkingu við þetta."

Sérhæft miðlunarfyrirtæki sem leggur verðmat á auglýsingagildi greina af þessu tagi hefur metið umfjöllunina um Ísland í GeoSaison á um 450 þúsund evrur eða sem svarar til rúmlega 40 milljóna íslenskra króna."


mbl.is Þrjátíu blaðsíðna umfjöllun um Ísland birt í víðlesnu þýsku ferðatímariti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.