Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Frá Feneyjum til Berlínar

eyfjord

Afsakið þetta langa blogghlé en það er einmitt tilkomið vegna langdvalar í Feneyjum og án netsambands! Sýningin hans Steingríms Eyfjörð er frábær og vonandi að sem flestir sem koma á tvíæringinn fari einnig á sýninguna hans þó að íslenski skálinn sé að þessu sinni ekki inni á Giardini heldur niður í bæ rétt hjá Rialto-brúnni. Hér eru upplýsingar um staðsetningu og þessháttar af síðu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar

bienaleNú er ég kominn í þetta fína netsamband hér í Berlín þar sem við verðum öll fram í byrjun ágúst og get því bloggað aftur af krafti! 


mbl.is Mikil aðsókn að íslenska skálanum á Feneyjartvíæringnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björg Eiríksdóttir opnar sýninguna "Myndir á vegg" á Café Karólínu laugardaginn 9. júní, 2007, klukkan 14

mynd á vegg2     mynd á vegg4

Björg Eiríksdóttir

Myndir á vegg

09.06.07 - 06.07.07   

Velkomin á opnun laugardaginn 9. júní 2007, klukkan 14

Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755


Laugardaginn 9. júní klukkan 14 opnar Björg Eiríksdóttir sýninguna "Myndir á vegg" á Café Karólínu. Café Karólína opnar nú klukkan 10 alla virka morgna en klukkan 12 á laugardögum og sunnudögum.

Björg segir um verkin: "Hugmyndirnar að verkunum á sýningunni koma úr mínu nánasta umhverfi. Hljóð í prófi í grunnteikningu, birta sem fellur í gegnum trjágreinar og gardínur á vegg og frímínútur. Þetta eru myndbönd, málverk, teikning og texti."

Björg tók B.ed próf frá KÍ árið 1991 og útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2003. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og er þetta þriðja einkasýning hennar.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um verk og feril Bjargar ásamt myndum af verkum á síðunni http://www.umm.is/UMMIS/Listamenn/Listamadur/615
Nánari upplýsingar veitir Björg í sima 6916681 og netfangið er bjorg(hjá)vma.is  

Meðfylgjandi er myndir af verkum Bjargar sem hún sýnir á Café Karólínu.

Björg verður viðstödd opnunina.
Sýningin á Café Karólínu stendur til 7. júlí 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 9. júní 2007, klukkan 14.

Sýning Jónasar Viðars á Karólínu Restaurant stendur til loka ágúst 2007.

Næstu sýningar á Café Karólínu:

07.07.07-03.08.07        Elísabet Jónsdóttir
04.08.07-31.08.07        Dagrún Matthíasdóttir
01.09.07-05.10.07        Stefán Jónsson
06.10.07-02.11.07        Marsibil G. Kristjánsdóttir
03.11.07-30.11.07        Birgir Sigurðsson
01.12.07-04.01.08        Steinunn Helga Sigurðardóttir
05.01.08-02.02.08        Guðrún Vaka 

Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson


Múrinn fallinn

múrinn

"Mér sýnist þeir vera 2698, dagarnir sem Múrinn var uppi. Og þegar best lét voru 13 greinar á Múrnum á viku, allar vikur á ári. Það gera um 670 greinar á ári. Seinna fækkaði þeim en heildarfjöldi greina gæti samt verið í námunda við 4000. Þetta er allgóður skammtur af róttæku lesefni. Við þetta tækifæri er því full ástæða til að vekja athygli lesenda á dálkinum Eldra efni. Á þessari stundu er hægt að skoða allt heila klabbið." Svo skrifar Stefán Pálsson á veftímaritið róttæka og frábæra, Múrinn, í gær. Lokaorðin eru einnig Stefáns:

"Það er engin uppgjöf í Málfundafélagi úngra róttæklínga. Félagar munu áfram tjá sig um heimsmálin og íslensk stjórnmál. Einn félaginn er kominn á alþingi. Aðrir hafa fastan dálk í útbreiddum blöðum. Enn aðrir tjá sig á netinu. Sá er þetta ritar er nú hættur reglulegum skrifum um stjórnmál en engan veginn laus við þá áráttu að vilja breyta heiminum til hins betra. Þeirri áráttu deila allir höfundar Múrsins og traustasti lesendahópur hans.

Því er rétt að sleppa kveðjum, við munum öll hittast í baráttunni. Múrinn heyrir sögunni til en þó aðeins sem kafli í lengri sögu sem ekki er lokið: sögunni um þau áhrif sem venjulegt fólk vill hafa, á að hafa og getur haft."


mbl.is Múrinn lagður niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Odd Nerdrum með skandal

odd.ásdís odd.nerdrum

Árið 2002 lýsti norski (íslenski) kitschmálarinn Odd Nerdrum því yfir að hann ætlaði aldrei að veita norskum fjölmiðlum viðtöl framar. Í kjölfarið flutti hann til Íslands og er nú með íslenskan ríkisborgarétt. Nú hefur hann hinsvegar sagt að hann verði viðstaddur blaðamannafund, sem boðað hefur verið til í Ósló í dag í tilefni af bók, sem verið er að gefa út um verk Nerdrums. Semsagt enginn skandall heldur bara ný bók:)


mbl.is Nerdrum tekur þátt í blaðamannafundi í Ósló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjóflóð og menningarflóð

Þórunn.EymundardóttirÞað má teljast mesta mildi að enginn sjömenninganna skyldi hafa slasast eða eitthvað þaðan af verra hent þau í snjóflóðinu. Ég var nýbúinn að ná í Huga og félaga hans aftur úr Fjallinu þegar þetta gerðist. Það hljómar dálítið spennandi af fá far niður af toppnum á snjóbreiðu en sennilega skemmtilegra eftir á heldur en að lenda í því.

Í Morgunblaðinu á föstudaginn skrifaði Anna Jóa svo um annarskonar flóð nefnilega myndlistarflóðið á Akureyri undir fyrirsögninni "Kraumandi listalíf". Þetta er áhugaverð grein og ég stal henni af síðunni hans Jónasar Viðars félaga míns og birti hér með nokkrum tenglum. 

MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 BLS. 19

Kraumandi listalíf

Athafnasemi á myndlistarsviðinu á Akureyri takmarkast ekki viðviðburði á Listasumri, heldur ríkir þar í bæ mikill myndlistaráhugi og gróska í sýningarhaldi allan ársins hring. Listasafnið á Akureyri hefur fyrir löngu sannað gildi sitt meðmetnaðarfullu sýningarhaldi, líkt og hið einstæða Safnasafn við Svalbarðsströnd.

Gróskuna í listalífi bæjarins má ekki síst rekja til starfsemi Myndlistaskólans á Akureyri sem nýlega fagnaði 33. starfs ári sínu með árlegri útskriftarsýningu. Skólinn býður upp á nám á háskólastigi í myndlist og listhönnun og er sem slíkur valkostur við höfuðborgarsvæðið. Skólinn stendur einnig fyrir námskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna og þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þeirrar starfsemi í samfélaginu. Myndlistaskólinn á Akureyri er viðurkenndur afmenntamálaráðuneytinu og styrktur af ríki og bæ en tryggja þyrfti fjárhagslegan rekstrargrundvöll hans til framtíðar.

Á Akureyri eru starfrækt fjölmörg sýningarrými og gallerí. Pistilhöfundur brá sér norður á dögunum og heimsótti sýningarrýmið galleriBox sem Menningarmiðstöðin Listagil við Kaupvangsstræti hefur umsjón með og rekið er af hópi myndlistarmanna sem hafa þar vinnustofur. Á sýningu Þórunnar Eymundardóttur „Hornberi“ hafði Boxinu verið pakkað inn og sviðsett þar nokkurs konar gægjusýning með hreindýraívafi. Næsti sýnandi er Margrét H.Blöndal sem tilnefnd var til íslensku sjónlistaverðlaunanna á síðasta ári en stofnað var til þeirra að frumkvæði Listasafnsins á Akureyri.

Listalífið er sérstaklega blómlegt við Kaupvangsstrætið. Í Jónas Viðar Gallery sýnir nú Þorvaldur Þorsteinsson en hann er Akureyringur að uppruna og hóf einmitt myndlistarnám sitt í Myndlistaskólanum. Áhugaverðar myndlistarsýningar hafa verið í Populus Tremula, menningarsmiðju í Listagilinu. Í Deiglunni í Listagilinu sýnir um þessar mundir Pétur Örn Friðriksson verk sem lúta m.a. að ferðalögum og farartækjum.

Brekkugatan státar af tveimur galleríum. Þar er Gallerí DaLí rekið, ásamt vinnuaðstöðu, af tveimur nemendum Myndlistaskólans, þeim Sigurlínu M. Sveinbjörnsdóttur eða Línu, sem nú sýnir í galleríinu í tengslum við útskrift sína, og Dagrúnu Matthíasdóttur. Framtak þeirra endurspeglar þann myndlistaráhuga sem starfsemi skólans hefur í för með sér.

Gallerí + við Brekkugötu 35 hefur verið starfrækt frá 1996 af hjónunum Guðrúnu Pálínu Guðmundsdóttur og Joris Rademaker – af löngun til að skapa „viðbót“ (samanber „+“) í listaflóru bæjarins. Nú er þar sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, sem framlengd hefur verið þrisvar sinnum vegna mikillar aðsóknar. Vel heppnuð sýning Aðalheiðar samanstendur af skúlptúrum og lágmyndum auk blárrar birtu úr lofti og er byggð inn í rýmið. Í sumar verður þarna sýning Guðrúnar Pálínu sem fjallar um sjálfsmynd hennar út frá stjörnukorti. Gallerí +er rekið í sjálfboðavinnu og nýtur lítilla sem engra styrkja og virðist sú vera raunin með ýmis önnur sýningarrými á Akureyri – þau virðast ekki rekin með hagnað að leiðarljósi. Mikilvægt er að styðja við bakið á slíkri hugsjónastarfsemi sem er mikilvægur þáttur í aðdráttarafli bæjarins.

Anna Jóa


mbl.is Sjö manns lentu í snjóflóðinu í Hlíðarfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullpálminn til Rúmeníu

Cristian.MungiuÞað mætti halda að þetta væri samsæri austurblokkarinnar. Allt svindl og svanárí...? Reyndar ekki, frekar en annarsstaðar, heldur er myndin 4 Luni, 3 Saptamini si 2 Zile (4 mánuðir, 3 vikur og 2 dagar) sennilega bara afar góð mynd og á þennan Gullpálma fyllilega skilinn. Til hamingju Cristian Mungi með myndina og pálmann. Myndin gerist í Rúmeníu seint á níunda áratugnum segir frá tveimur vinkonum sem leita allra leiða til að koma annarri þeirra í ólöglega fóstureyðingu. Löng skot einkenna víst myndina og eru hennar aðal sjarmi auk aðalleikkonunnar, Anamaria Marinca, sem heldur myndinni uppi með mögnuðum en hófstilltum leik samkvæmt lýsingum Birtu Björnsdóttur í Cannes. Aðdráttarafl myndarinnar felst ekki síður í þeirri yfirvofandi eymd sem áhorfandinn skynjar allan tímann án þess að verið sé að velta sér uppúr því dapurlega. Umsögn tyrkneska rithöfundarins og Nóbelsverðlaunahafans Orhan Pamu lofar góðu en hann segir „Þetta er alveg ótrúlega falleg mynd og maður naut hverrar sekúndu við að horfa á hana. Við vorum næstum öll á einu máli um, að þetta væri besta mynd hátíðarinnar.”
Vonandi fáum við að sjá myndina hér uppfrá fljótlega sem kærkomna hvíld frá Hollywoodvellunni. Mig langar auðvitað líka til að sjá myndina No Country For Old Men þeirra Coen bræðra en mér fannst ansi slappt af þeim að mæta ekki á lokaathöfnina þó að þeir hafi ekki hlotið gullið að þessu sinni. En kannski komust þeir bara ekki eða vissu ekki að Jane Fonda myndi mæta til að afhenda verlaunin og fara í smá leikfimi. Synd að missa af þessu.


mbl.is Fagnað þegar tilkynnt var að gullpálminn færi til Rúmeníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskriftarsýning nemenda Myndlistaskólans á Akureyri opnar í dag, laugardag klukkan 14

mynd_list

Þrítugasta og þriðja starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans að Kaupvangsstræti 16. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.

Eftirtaldir nemendur útskrifast úr sérnámsdeildum skólans: Aðalbjörg Kristjánsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Charlotta Þorgils, Sigurlín Margrét Grétarsdóttir, Steinn Kristjánsson, Steinunn Ásta Eiríksdóttir, Sveinbjörg Ásgeirsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Hjalti Jónsson, María Hafsteinsdóttir og Petra Sæunn Heimisdóttir.

Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiðum á vorönn. Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri um helgina. Sýningin verður opin kl. 14 til 18 laugardaginn 19. maí og sunnudaginn 20. maí.

Hér er svo glæsileg heimasíða skólans. Þar má meðal annars fá allar upplýsingar um skólann, umsóknarblöð og sjá útskriftarverk Eyrúnar Eyjólfsdóttur frá því í fyrra sem var svo tilnefnt til Eddu verðlaunanna 2007.


Hannes Hólmsteinn á óbeint þátt í góðverki

óttarÓttar M. Norðfjörð er gæðablóð og frábær rithöfundur. Það var snilld að bókin hans Hannes – Nóttin er blá, mamma yrði metsölu jólaflóðsbók. Lítil og handhæg og ódýr. Ég get varla beðið eftir öðru bindinu Hólmsteinn - ... eða því þriðja og síðasta Gissurarson - ... Hvað er annars orðið um HHG? Merkilegt að hann hverfur alltaf tímanlega fyrir kosningar. Var hann sendur úr landi? Og hann á óbeint þátt í góðverki! Mæðrastyrksnefnd á allt gott skilið og Óttar M. Norðfjörð einnig. Meira svona.

mbl.is Mæðrastyrksnefnd fær ágóðann af metsölubók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LHÍ í Vatnsmýrina

lhíFrábært hvað allt er að gerast þetta vorið. Ég held að það væri gott að hafa kosningar á hverju ári svo ráðherrarnir haldi sér við efnið. Þegar Listaháskólinn flutti í Laugarnesið var það einmitt samþykkt rétt fyrir kosningar. Þetta hefur auðvitað staðið til lengi og náttúrulega ber að fagna því að staðsetningin sé loksins komin á hreint. Svo þarf að koma upp almenningssamgöngum og byggja helling af íbúðum í Vatnsmýrinni svo þar geti myndast Manhattan borgarinnar. Þar getur fólk búið sem þarf ekki að eiga bíl. Þátturinn hans Hjálmars Sveinssonar Krossgötur á Rás 1 áðan um grænu byltinguna í New York var mjög góður og ég mæli með því að fólk hlusti á hann. Til hamingju LHÍ með að vera kominn með annan fótinn í Vatnsmýrina.
mbl.is Listaháskólinn fær lóð í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allsbert fólk út um allt

spencer

Spencer Tunick er ansi skemmtilegur náungi. Hann fékk lögguna í New York til að æsa sig þegar hann byrjaði að stilla nöktu fólki upp og taka myndir af því, en það mátti ekki vera allsber í NY. En núna má hann sem betur fer allt. Þetta eru flottar myndir og hann sýndi einmitt hér í Listasafninu á Akureyri í fyrra. Um sýninguna sagði: "Verk fárra listamanna hafa vakið meiri athygli á síðastliðnum árum en ljósmyndir bandaríkjamannsins Spencers Tunick af nöktu fólki í þúsundatali í borgum og bæjum um allan heim. Almenningur á jafn ólíkum stöðum og Sviss, Finnlandi, Ástralíu, Brasilíu og Chile hefur svarað kalli listamannsins og þyrpst til að taka þátt í þessum gjörningum hans. Ekki hefur heldur staðið á viðbrögðum: Menn hafa ýmist vænt Tunick um siðleysi og úrkynjun eða lofað verk hans fyrir að ögra siðareglum samtímamenningar okkar og viðteknum skilgreiningum á listsköpun. Með sýningunni, sem ber heitið Bersvæði, gefst landsmönnum tækifæri til að vera með, að minnsta kosti sem áhorfendur, og skoða yfirlit af verkum Tunicks frá 1998-2005. Þetta er stærsta sýning sem haldin hefur verið á verkum listamannsins og eru þau fengin frá I-20 galleríinu í New York og Hale’s safninu í London." Og nú er hann að fara að opna á Listahátíð sýningu í i8 á laugardaginn (12. maí), sama dag og Roni Horn opnar í Hafnarhúsinu og sama dag og fólk getur kosið Vinstri græn um allt land. 


mbl.is 20 þúsund naktar manneskjur í Mexíkóborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband